Auglýsing
Döðlugott með tvisti döðlur rice krispies núpur berufjörður púðursykur súkkulaði karamella bogga vilborg friðriksdóttir núpur núpi
Döðlugott með tvisti

Döðlugott með tvisti

250 g saxaðar döðlur
1 msk hunang eða 1 msk púðursykur
100 g smjör
4 dl Rice Crispies
150 gr Rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti

Döðlur, smjör og hunang sett saman í pott. Mér finnst að fá góðan hita í blönduna áður en ég tek pottinn af hellunni og set rice crispies saman við. Helli svo úr pottinum á bökunarplötu og slétti vel úr blöndunni. Læt hana kólna vel og set svo bráðið rjómasúkkulaðið yfir blönduna. Mér finnst gott að frysta blönduna, taka hana svo út þegar hún er orðin vel frosin og skera döðlugottið í hæfilegar munnbitastærðir.

Döðlugottið var ásamt fleira góðgæti í kaffiveislu hjá Boggu frænku minni á Núpi

— RICE KRISPIESKAFFIBOÐBOGGUUPPSKRIFTIR

.

— DÖÐLUGOTT MEÐ TVISTI —

.

Auglýsing