Heitur brauðréttur Elsu Guðjóns

ELSA GUÐJÓNSDÓTTIR Heitur brauðréttur Elsu Guðjóns guðjónsdóttir heitur réttur í ofni ofnréttur einfaldur fljótlegur einfalt auðvelt gott góður Fáskrúðsfjörður tangi handverkskonur gallerí kolfreyja
Heitur brauðréttur Elsu Guðjóns, hinn sívinsæli.

Heitur brauðréttur Elsu Guðjóns

Þegar handverksfólk í Galleríi Kolfreyju hittist kom Elsa Guðjóns með heitan brauðrétt. Eins og áður hefur komið fram eru heitir réttir sívinsælir

GALLERÍ KOLFREYJAFÁSKRÚÐSFJÖRÐURHEITIR RÉTTIRELSA GUÐJÓNSDÓTTIR

Heitur brauðréttur Elsu Guðjóns

1 piparostur
1 sveppaostur
1 rauð paprika
1 skinkubréf, skorið í teninga
1 ds grænn aspas í bitum
1 ds sveppir
10 brauðsneiðar rifnar niður
dass af rjóma
rifinn ostur

Ostur bræddur í potti með rjóma. Skinku, aspas og sveppum bætt saman við. Brauðið sett í eldfast form. Hellt úr pottinum yfir og rifinn ostur settur yfir. Bakað í ofni þar til ostur er gulbrúnn

Heitur réttur í ofni ofnréttur brauðréttur elsa guðjóns
Elsa, Inga, Elísa, Tóti, Sigrún, Alla og Gunnhildur

.

GALLERÍ KOLFREYJAFÁSKRÚÐSFJÖRÐURHEITIR RÉTTIR —

— HEITUR BRAUÐRÉTTUR ELSU GUÐJÓNS —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.