Grænkálspestó

Grænkálspestó grænkál pestó furuhnetur ítalskur matur olio nitti ólífuolía ítölsk olía ítalía basil hvítlaukur
Grænkálspestó

Grænkálspestó

Á dögunum fékk ég hreina ítalska ólífuolíu, OLIO NITTI, sem er ein sú besta sem ég hef prófað. Einnig fékk ég lífrænt ræktaðar möndlur sem fóru í möndlusmjör og hvarf síðan eins og dögg fyrir sólu. Olían og möndlurnar koma beint frá Nitti fjölskyldunni í Puglia héraði á Ítalíu. Lífræn, bragðgóð hollusta.

.

OLIO NITTI — PESTÓGRÆNKÁLMÖNDLURMÖNDLUSMJÖRÍTALÍA

.

Grænkálspestó

hnefafylli af grænkáli
hnefafylli af basil
2-3 hvítlauksgeirar
3 msk furuhnetur
3-4 msk parmesan ostur
mjög góð ólífuolía – OLIO NITTI
salt og pipar

Setjið grænkál, basil, hvítlauk olíu og pipar í matvinnsluvélina og maukið. Skerið ostinn gróft og bætið saman við ásamt hnetum og maukið smá stund. Gott er að mauka ost og hnetur ekki mjög smátt. Bætið við olíu eins og þarf og saltið í lokin. Munið að Parmesan ostur er saltur.

OLIO NITTI ólífuolía og möndlur. Færslan er unnin í samvinnu við OLIO NITTI

.

OLIO NITTI — PESTÓGRÆNKÁLMÖNDLURMÖNDLUSMJÖRÍTALÍA

— GRÆNKÁLSPESTÓ —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.