Keto Pavlova

Berta Dröfn ómarsdóttir með Keto Pavlovuna pavlova skyr skyrterta ísey skyr bláber pekan
Berta Dröfn sker Keto Pavlovuna

Keto Pavlova

Berta Dröfn kallar ekki allt ömmu sína. Hún hristi þessa undurgóðu pavlovu fram úr erminni á öðrum degi á ketó mataræði. Þessi uppskrift var algjör tilraunastarfsemi en útkoman kom skemmtilega á óvart. Líklegt er að pavlovan verði oft með kaffinu í þessu átaki.

BERTA DRÖFNKETÓPAVLOVURSKYR

.

Keto Pavlova

Botn:
2 eggjahvítur
50 gr. sukrin gold
1 tsk lyfitduft

Þeyta vel og lengi.
Sett á bökunarpappír inní ofn: 130°C í klst

Krem:
1/4 l rjómi
200 gr. ísey skyr stracciatella
1/2 msk vanillu nectar próteinduft

Léttþeytið rjómann og bætið skyri og próteindufti við. Berta útbjó kremið á meðan botninn var í ofninum. „Ég lét það þykkjast í ísskápnum í ca klst áður en ég setti kremið á botninn.”

Ofan á:
Nokkur bláber
Handfylli af pekanhnetum
Salty caramel sykurlaus sósa yfir kökuna.

Berta Dröfn með Keto Pavlovuna

.

KETO PAVLOVA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.