Bresk heslihnetukaka – bragðmikil og hátíðleg

Bresk heslihnetuterta með súkkulaði – safarík terta

0
Auglýsing
Bresk heslihnetukaka england enskur matur heslihnetur Aftari röð frá vinstri: Elín Hrefna Thorarensen(móðir Ragnheiðar Elínar), Alma Tryggvadóttir, Svala Thorarensen, Katrín Erla Thorarensen, Helga Hrefna Bjarnadóttir og Þórunn Erna Clausen. Fremst Ragnheiður Elín Clausen og Ragnheiður Erla Bjarnadóttir.bresk heslihnetuterta bresk heslihnetukaka heslihnetuterta heslihnetukaka heslihnetuterta með súkkulaði heslihnetukaka með súkkulaði súkkulaði og heslihnetuterta súkkulaði og heslihnetukaka heslihnetukaka uppskrift heslihnetuterta uppskrift uppskrift af heslihnetutertu uppskrift af heslihnetuköku bestu heslihnetukökur bestu heslihnetutertur einföld heslihnetukaka einföld heslihnetuterta hátíðleg terta með súkkulaði hátíðleg kaka með heslihnetum tertauppskrift með súkkulaði kaka með heslihnetum baka með heslihnetum hnetukaka með súkkulaði hnetuterta með súkkulaði kaka með ristuðum heslihnetum torta með heslihnetum dessert með heslihnetum eftirréttur með súkkulaði og heslihnetum súkkulaðikaka með heslihnetum klassísk heslihnetukaka bresk heslihnetuterta (aðal lykilorð) heslihnetuterta með súkkulaði heslihnetukaka með súkkulaði heslihnetuterta uppskrift heslihnetukaka uppskrift súkkulaði og heslihnetukaka kaka með heslihnetum og súkkulaði hátíðleg terta með súkkulaði kaka með ristuðum heslihnetum terta fyrir kaffiboð gömul uppskrift heslihnetukaka bresk kaka með heslihnetum bresk terta með súkkulaði bresk eftirréttauppskrift ensk kaka með heslihnetum enska heslihnetukaka traditional british hazelnut cake british hazelnut cake recipe hazelnut chocolate cake recipe hazelnut torte recipe hazelnut cake with chocolate classic hazelnut cake european hazelnut cake old fashioned hazelnut cake hazelnut dessert recipe chocolate hazelnut dessert cake with ground hazelnuts cake without baking powder kaka án lyftidufts tertauppskrift án lyftidufts kaka með eggjahvítum kaka með maluðum heslihnetum kaka með dökku súkkulaði kaka í smelluformi tertubotn með heslihnetum glútenrík kaka með hnetum safarík heslihnetukaka bragðmikil heslihnetuterta kaka sem slær í gegn vinsæl terta með súkkulaði tertauppskrift fyrir veislur kaka fyrir kaffiboð tertauppskrift fyrir afmæli eftirréttur fyrir kaffiboð hvað er gott að baka með heslihnetum
Bresk heslihnetuterta með súkkulaði og ristuðum heslihnetum

Bresk heslihnetuterta

Bragðmikil og hátíðleg heslihnetuterta með súkkulaði og ristuðum heslihnetum

Þessi dásamlega breska heslihnetuterta er bragðmikil, með ristuðum heslihnetum og súkkulaði sem fara einstaklega vel saman. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir kom með tertuna í afmæli frænku sinnar, Ragnheiðar Elínar Clausen, og vakti hún verðskuldaða athygli við kaffiborðið. Uppskriftin er upprunalega úr bókinni Foods of the World: England – The Cooking of the British Isles, en hefur verið löguð að íslenskum aðstæðum. Ragnheiður Erla keypti bókina fyrir meira en fjörutíu árum og hefur bakað þessa tertu aftur og aftur með góðum árangri.

Auglýsing

SÚKKULAÐITERTURHESLIHNETURENGLANDTERTURRAGNHEIÐUR ELÍN

.

Aftari röð frá vinstri: Elín Hrefna Thorarensen(móðir Ragnheiðar Elínar), Alma Tryggvadóttir, Svala Thorarensen, Katrín Erla Thorarensen, Helga Hrefna Bjarnadóttir og Þórunn Erna Clausen. Fremst Ragnheiður Elín Clausen og Ragnheiður Erla Bjarnadóttir.

Bresk heslihnetukaka

Botn:
250 gr heslihnetur með hýði
200 gr suðusúkkulaði
100 gr hveiti
125 gr eða 1/2 lítið smjörstykki, lint, við stofuhita
200 gr sykur
1/2 tsk vanilludropar
7 egg: skilja að rauður og hvítur

Setjið heslihnetur í ofn við 150°C (blástur) í 20–30 mínútur þar til þær eru vel ristaðar. Látið kólna og nuddið hýðið af í viskastykki.

Malið 150–200 g af heslihnetunum fínt í matarvinnsluvél. Bætið súkkulaðinu út í og malið áfram þar til myndast þétt mauk.

Smyrjið smelluform (ca. 24 cm), setjið bökunarpappír í botn og stráið hveiti í formið.

Þeytið smjör og sykur létt og ljóst. Bætið vanilludropum út í.
Setjið eggjarauðurnar út í, eina í einu.
Bætið hveitinu út í og hrærið saman.
Blandið síðan súkkulaði-hnetumaukinu saman við.

Þeytið eggjahvíturnar stífar.
Hrærið ¼ af hvítunum ákveðið saman við deigið til að létta það.
Blandið restinni varlega saman við með sleif (ekki hræra of mikið).

Hellið deiginu í formið.
Bakið við 150–160°C (180–185°C án blásturs) í um 75 mínútur.
Látið kökuna kólna í forminu.

Krem

100 g flórsykur
4 msk kalt vatn
200 g suðusúkkulaði
2½ tsk sterkt kaffi

Setjið allt í pott og hitið við vægan hita þar til súkkulaðið er bráðið.
Hrærið vel saman og látið kólna í 10–15 mínútur þar til kremið þykknar aðeins.
Hellið yfir kökuna og leyfið að storkna.
Skreytið með afgangi af heslihnetum.

.

SÚKKULAÐITERTURHESLIHNETURENGLANDTERTURRAGNHEIÐUR ELÍN

.

Fyrri færslaGulrótaterta – þessi getur bara ekki klikkað
Næsta færslaChiagrautur með bláberjum og kanil