Vinkonurnar Kristín A. Árnadóttir og Sigríður Snævarr slógu upp veislu með litlum fyrirvara fyrir samstarfskonur sínar. „Við leggjum til að þið gerið langa sögu stutta og í stað þess að þvælast um allan bæ eftir hráefninu þá sé farið beint í Melabúðina og þar fæst allt sem þarf” segja þær stöllur sem kunna að skapa létta og hressandi stemningu í boðum. Kristínu hittum við í afmælisveislu á Álandseyjum fyrir nokkrum árum. Sigríður rifjaði upp okkar fyrstu kynni. Þá var hún sendiherra í París og ég með safn um franska sjómenn á Fáskrúðsfirði. Safnstjórinn var með stórar hugmyndir fyrir safnið og Fáskrúðsfjörð og skrifaði sendiherranum tölvupóst. Hún segir að ég sé eini maðurinn sem hún hafi kynnst á netinu.
Matseðill Kristínar og Sigríðar var sko ekki af verri endanum:
-Grillaður franskur geitaostur með hunangi, limeberki og mintu.
-Marokkósk kjúklingatagina með ólífum og súrsuðum sítrónum.
-Bökuð jarðarber með jógúrtrjóma og mintu að hætti Ottolenghi.
— FRAKKLAND — MAROKKÓ — ÍSRAEL — GEITAOSTUR — TAGINA —
Grillaður franskur geitaostur með hunangi, limeberki og mintu, borinn fram á salatbeði.
Marokkósk kjúklinga tagina með ólífum og súrsuðum sítrónum
Fyrsta stig:
1 kjúklingur í bitum
5 fínsöxuð hvítlauksrif
hálf teskeið engiferduft
1 tsk sæt paprika
1/2 tsk malað kúmín
1/2 tsk túrmerik
salt og pipar.
Þessu er blandað saman og kjúklingur, einn eða tveir, sem hlutaðir eru í bita, fá nudd með kryddblöndunni. Þá er kjúklingurinn settur til hliðar og marineraður nokkra tíma og kannski yfir nótt. Það er þægilegast.
Annað stig:
Ólífuolía til steikingar
3 laukar, saxaðir
kanilstöng
8-10 Kalamata ólífur – steinhreinsaðar og skornar í tvennt
8-10 grænar ólífur – steinhreinsaðar og skornar í tvennt
3 súrsaðar sítrónur (preserved lemons)
Olían er hituð í potti eða pönnu, kjúklingabitarnir steiktir vel frá öllum hliðum. Færðir á fat. Laukurinn er steiktur í uþb 15 mínútur í sama potti/pönnu við vægan hita. Laukurinn er þá settur í marókósku tagínuna (eða í eldfast mót) og kjúklingabitunum raðað ofaná laukinn. Kanelstöng komið fyrir í fatinu hjá lauk og kjúklingbitum. Dreifið ólífum yfir kjötið. Sneiðið sítrónurnar fínt og dreifið jafnt yfir kjúklingana, laukinn og ólífurnar. Þegar hér er komið sögu lítur þetta mjög falleg út og girnilega.
Þriðja stig: Búa til soð úr 1 bolla af kjúklingakrafti og safanum af hálfri sítrónu. Hellt yfir réttinn ásamt slatta af smátt sneiddri ítalskri steinselju (þessi flata). Nú er tímabært að setja lokið á tagínuna eða pottinn og setja í ofninn. Láta dúrra við meðalhita í klukkustund eða svo. Strá fínt saxaðir steinselju yfir áður en borið er fram.
Tabbouleh
1 b perlubygg*
4 tómatar
2 skarlottulaukar
1 b söxuð steinselja
1 dl söxuð minta
3-4 msk sítrónusafi
1 dl ólífuolía
1 tsk allrahanda
salt og svartur pipar
Sjóðið búlgurnar samkvæmt leiðbeiningu á pakkningu – látið kólna.
Látið búlgurnar í skál, saxið tómata og lauk og setjið saman við. Bætið mintu, steinselju, olíu og kryddi saman og blandið vel saman.
*Íslensk byggið frá Vallanesi, perlubyggið er soðið í korter, gjarnan með brytjuðum vorlauk saman við, og er bæði mjög hollt og gott.
Babaganoush (eggaldinmauk) sem er eggaldinmauk kennt við Lebanon þótt það eins og annað hér sé algengt í mismunandi útfærslum víða í Mið-Austurlöndum.
Tabbouleh (tómata-, steinselju- og mintu og bulgur salat) sem er líka arabískt salat, frá Mið-Austurlöndum og hægt er að útfæra á ólíkan hátt. Sjá að neðan um helstu hráefni, en við mælum með að þið gúgglið og veljið þannig.
Babaganoush
3 lítil eggaldin
3 hvítlauksrif, söxuð smátt
3 msk sítrónusafi (eða rúmlega það)
1/4 b tahini
3/4 b extra virgin ólífu olía – og aðeins meira til að pensla eggaldinið
3-4 msk söxuð steinselja
3/4 tsk salt
1/4 tsk cumin
reykt paprika
Það er gott að hafa þurrt brauð, flatbrauð eða pítubrauð á borðinu til þess að dýfa í.
Sumac-bökuð jarðarber með jógúrtrjóma
1/2 b rjómi, léttþeyttur
1 b grísk jógúrt
1 msk sykur
smá salt
börkur af einni sítrónu
2 msk sítrónusafi
600 g jarðarber, skorin í tvennt
1 1/2 tsk sumac krydd
1/2 b fersk minta
1 vanillustöng
1 msk sykur.
Hrærið saman jógúrt, sykri, salt, rjóma og sítrónuberki.
Setjið jarðarber í skál, stráið sumac og mintu yfir. Skerið vanilluna eftir endilöngu, skafið fræin úr og blandið saman við jarðarberin ásamt sítrónusafa. Stráið sykri yfir. Setjið allt í eldfast form og bakið við 175°C í um 20 mín. Hrærið varlega í eftir tíu mín. Látið kólna.
Setjið jarðarberin í skálar, jógúrtrjómann yfir. Skreytið með sítrónuberki, mintu (og ferskum jarðarberjum)
.
— FYRIRMYNDARVINKVENNAMATARBOÐ —
.