Að loknum vel heppnuðum tónleikum í stútfullum Salnum buðu Hlöðver og Þórunn heim í dýrindis humarrétt.
— SÆTABRAUÐSDRENGIRNIR — HUMAR — FISKUR Í OFNI —
.
Humarréttur eitt stórt fat
1/4 lítri þeyttur rjómi
180 gr sýrður rjómi
1 msk majónes
1-2 matsk hvítlauksduft
2 pakkar Golden hrísgrjón
600-900 gr humar
1 askja sveppir
Salt og piparflögur
Ostur
Smá Pipar
Salt
Hvítlaukur
Þeyta rjómann og blanda svo majonesi og sýrða rjómanum saman, setja svo hvítlauksduftið saman við og geyma helst í ísskáp í einn dag.
Sjóða hrísgrjónin og setja í botninn á eldfasta mótinu, steikja humarinn á pönnu með smjöri, hvítlauk og smá salti og pipar og raða ofaná, steikja svo sveppina upp úr smjöri og dreifa yfir, hella rjómasósunni yfir og láta standa aðeins meðan sósan sígur niður, brjóta flögur niður og blanda með rifnum osti og setja yfir og inn í ofn við 180 gráður þangað til osturinn er brúnaður.
.
.