Auglýsing
Scones. því miður veit ég ekki hvort til er gott íslenskt nafn yfir þær – amk gengur ekki að tala um skonsur england enskur matur
Scones, því miður veit ég ekki hvort til er gott íslenskt nafn yfir þær – tja ekki nema þá enskar skonsur.

Scones – enskar skonsur

Þeir sem hafa farið í High Tea þekkja Scones. Því miður veit ég ekki hvort til er gott íslenskt nafn yfir þær – amk gengur varka að tala um skonsur. Kannski fer best á að kalla þær enskar skonsur. Afternoon Tea / High Tea er aldagamall siður og fylgja ýmsar skráðar og óskráðar „reglur” sem fólk er beðið að virða og fara eftir. Ein reglan er að ekki má skera scones í sundur með hnífi heldur á að snúa þær í sundur, síðan er hvor helmingurinn smurður og borðaður aðskilinn frá hinum (ekki búa til samloku).

Ekki veit ég hversu oft ég var búinn að fara í High Tea áður en ég vissi af þessum „reglum”. Það er eins með þetta og annað, um leið og við þekkjum og tileinkum okkur siðina/reglurnar/borðsiðina/kurteisina (eða hvað það nú er) þá verður allt auðveldara, frjálslegra og afslappaðra.

SCONESSKONSURHIGH TEAROYALENGLAND

.

Scones – enskar skonsur

500 g hveiti

110 g smjör

2 msk lyftiduft

2 msk sykur

¼ msk salt

Sett í matvinnsluvél, en vinnið smávegis á eftir með höndunum með örlitlu vatni til að deigið haldist saman.

150 g rúsínur (eða bláber) (má sleppa)

appelsínubörkur

350 g mjólk

Hrærið með skeið og eltið svolítið með höndum.

Búið til 3 cm rúllu og skerið með beittum hníf, með 5 cm millibili.

Setjið á bökunarplötu með pappír og penslið með eggi. 180°C í 20 mín.

Þeytið sýrðan rjóma eða mascarpone með rjóma og berið fram með lemon curd og sultum.

.

SCONESSKONSURHIGH TEAROYALENGLAND

— SCONES —

.

Auglýsing

1 athugasemd

  1. Sæll Albert.
    Þar sem þú segir “Búið til 3 cm rúllu og skerið með beittum hníf, með 5 cm millibili.” áttu þá við að rúllan sé 3 cm að þykkt og sneiðarnar 5 cm þykkar? Læturðu síðan skurðflötinn snúa niður á bökunarplötuna eða snýr “kakan” á lengdina?
    Ég á gamla scone – uppskrift úr dönsku blaði þar sem deigið er flatt út og tekið undan glasi. Þær scones voru frekar þurrar og þurfti að borða volgar til að eitthvað væri í þær varið. Hlakka til að prófa þessar.
    Kær kveðja,
    Dagný Zoega

Comments are closed.