Kollagenið frá Beta Nordic
Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur veit hvað hún syngur þegar kemur að góðri næringu og öðru til að líkaminn starfi sem best. Síðustu ár hef ég notið handleiðslu Betu og fylgt hennar góðu ráðum. Beta lætur framleiða sitt eigið kollagen, sem er helsta byggingarprótein líkamans. Meira HÉR.
— ELÍSABET REYNISD —
.
Af heimasíðunni Beta Nordic:
Orðið kollagen kemur upphaflega úr grísku þar sem „colla” merkir lím og „gen” að framleiða.
Kollagen styrkir bein, vöðva, húð, liði, sinar og innri líffæri. Í eðlilegri líkamsstarfsemi framleiðir líkaminn kollagen en um 25 ára aldurinn fer að hægjast á framleiðslunni. Við það byrja vefir líkamans að veikjast og bera fer á ýmsum einkennum öldrunar eins og auknum stirðleika og verkjum í liðum og liðamótum. Áhrifanna gætir einnig á húð okkar; teygjanleiki minnkar og hrukkur fara að myndast. Rannsóknir sýna að til að vinna á móti hrörnun er mælt með að taka kollagenið með góðum vítamínunum, t.d. frá Beta Nordic.
Beta Nordic kollagenið er 100 % náttúrlegt kollagen, unnið úr villtum þorski og án allra aukaefna.
Já og svo er hún með sína eigin vítamín-línu.
.