Auglýsing
Litlar pavlovur - Eftirréttur fyrir 6 manns húsfreyjan KVENNAKÓR GRINDAVÍK kvennakórinn grindavíkurdætur kvennakórinn hrynjandi Berta Dröfn Ómarsdóttir & Svanur Vilbergsson, Ásdís Elvarsdóttir, Íris Sveinsdóttir , Jón Guðmundsson og Sonja Haraldsdóttir
Ljúffengar litlar pavlovur. Sóma sér vel á hvaða veisluborði sem er.

Litlar Pavlovur

Söngkonan Berta Dröfn kann svo sannarlega að lifa lífinu og lætur drauma sína rætast. Reglulega fréttist af henni syngjandi í uppfærslum í New York eða á Ítalíu. Hún er af miklu „matarkyni” komin er óhrædd við að prófa nýja rétti og slær upp veislu af minnsta tilefni. Milli þess sem hún sinnir gestum Þjóðarbókhlöðunnar stjórnar hún tveimur kvennakórum með brosi á vör, Grindavíkurdætrum og Kvennakórnum Hrynjanda. Berta heldur reglulega til Ítalíu, ýmist í tónleikaferðir eða sem leiðsögukona með fróðleiksfúsa ferðamann. Svanur Vilbergsson gítarleikari stóð þétt við hlið Bertu sinnar við að undirbúa veisluna.

BERTA DRÖFNPAVLOVURSALÖTHÚSFREYJANGRINDAVÍKKVENNAKÓR

Auglýsing

.

Svanur, Íris, Ásdís, Sonja, Jón og Berta

Litlar pavlovur – Eftirréttur fyrir 6 manns

Botn:
4 eggjahvítur
150 gr. sykur
100 gr. flórsykur

Hrærið eggjahvítu og sykri mjög vel saman í hrærivél. Sigtið flórsykur í skál og bætið við í hrærivélina í skömmtum.
Setjið marensinn í sprautu og dreyfið með jöfnu millibili á bökunarpappír. Bakið við 100° í klukkustund eða þar til hann er orðinn harður.

Toppur:
½ l. rjómi
500 gr. Vanilluskyr
Smartís eða annað skraut á toppinn

Létt þeytið rjómann og blandið skyrinu saman við. Setjið toppinn með lítilli skeið ofan á marensinn rétt áður en rétturinn er borinn fram.
Skreytið að vild og eftir smekk.

Berta aðstoðar Sillu ljósmyndara en uppskrifin og fleiri til birtist í Húsfreyjunni.

BERTA DRÖFNPAVLOVURSALÖTHÚSFREYJANGRINDAVÍKKVENNAKÓR

.