Ís Grand Marnier

Ís Grand Marnier Ís Grand Mariner rjómaís Hjónin Kristín Sigurðardóttir og Kjartan Reynir Ólafsson 1981 ís eftirréttur jólaís hnífsdalur birgir steinunn hrafnhildur og jobbi gestgjafinn Hildur Elísabet pétursdóttir svavar þór guðmundsson Birgir Jónsson og Steinunn Pétursdóttir
Ís Grand Mariner – hátíðlegur og alveg ljómandi góður

Ís Grand Marnier

Hrafnhildur Samúelsdóttir og Jósef Hermann Vernharðsson í Hnífsdal buðu okkur í mat og nutu liðsinnis Birgis Jónssonar og Steinunnar Pétursdóttur við undirbúning og eldamennsku. Í forrétt var undurgóð rjómalöguð humarsúpa og gómsætur, lungamjúkur hægeldaður lambahryggur í aðalrétt með sætkartöflurétti og eplasúkkulaðirjómasalati. Í eftirrétt var ljómandi góður Grand Marnier rjómaís. Hrafnhildur hefur af og til búið hann til allt frá því að uppskriftin birtist í fyrsta árgangi Gestgjafans 1981 (sjá neðst).

Þau Hrafnhildur og Jósef ásamt Birgi og Steinunni eru fyrirmyndargestgjafar. Birgir hefur að vísu smá forskot, þar sem hann er lærður kokkur og þjónn, en saman mynda þau liðsheild, þar sem allt er upp á 10, matur, framreiðsla og glaðlegt andrúmsloft. Mikið er gott að vera með góðu fólki!

GRAND MARNIERRJÓMAÍSEFTIRRÉTTIRHNÍFSDALURGESTGJAFINN

.

Hrafnhildur, Hildur og Steinunn

Ís Grand Marnier

5 eggjarauður
1/2 b sykur
5 eggjahvítur
1/2 b Grand Marnier
2 b rjómi
1 tsk instant kaffi.

Eggjarauður og 1/4 b sykur þeytt vel saman.
Eggjahvítur stífþeyttar og síðan bætt út í 1/4 b af sykri og þeytt vel saman.
Rjómi stífþeyttur.
Eggjarauðumassa og hvítum blandað varlega saman. Grand Marnier og kaffiduftinu, sem búið er að leysa upp í líkjörnum, blandað saman við.
Að lokum er rjómanum vætt saman við.

Þennan ís er hægt að frysta í stóru formi í sér desert skálum og er þá ísinn borinn fram í skálunum sjálfum – ef þær eru fallegar – eða þá að ísinn er losaður úr skálunum og settur á litla diska.
Ísinn skreyttur með ristuðum möndlum – bestar steiktar augnablik í smjöri á pönnu – súkkulaði og þeyttum rjóma.

Já, rétt er það, skálarnar eru þrjár sem þarf að þvo eftir ísgerðina.

Gestgjafinn 4 tbl.1981

Bergþór, Svavar og Albert
Steinunn, Jósef og Bergþór
Albert, Birgir og Hrafnhildur
Uppskriftin að þessum hátíðlega Grand Marnier rjómaís birtist í Gestgjafanum árið 1981. Hjónin Kristín Sigurðardóttir og Kjartan Reynir Ólafsson héldu matarboð fyrir blaðið. „Það er reyndar með ólíkindum að þau Kristín og Reynir skuli gefa sér tíma til þess að taka á móti gestum. En eins og Kristín réttilega orðaði það, getur það líka verið afslappandi og allir hafi gott af gestaboðum, heimilisfólk jafnt og hús sem nýtur góðs af því í auka tiltekt og góðri matarlykt” stendur m.a. í blaðinu. Í forrétt voru litlar snittur með reyktum laxi og rækjum og í aðalrétt var portvínssteik.

GRAND MARINERRJÓMAÍSEFTIRRÉTTIRHNÍFSDALURGESTGJAFINN

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Blóðnasir hættu eftir að mataræði var tekið í gegn

Blóðnasir

BLÓÐNASIR. Allar götur síðan ég man eftir mér hef ég fengið blóðnasir að minnsta tilefni. Mjög oft hefur verið brennt fyrir en ekkert breyttist við það. U.þ.b. þremur vikum eftir að við gerðumst grænmetisætur hætti ég að fá blóðnasir og hef ekki fengið síðan.

Fyrri færsla
Næsta færsla