Hafrakex mömmu

Klassískt íslenskt hafrakex með smjöri og osti

0
Auglýsing

Hafrakex mömmu stökkt kex lillý viðarsdóttir stöðvarfjörður haframjöl heilhveiti
Lillý með hafrakexið góða – einfalt, stökkt og ómótstæðilegt – svona á alvöru hafrakex að vera.

Hafrakex mömmu

Stöðfirðingurinn Lillý Viðarsdóttir er af miklu matarfólki komin og kann svo sannarlega að baka gott hafrakex. Þegar við hittumst var hún með nýbakað hafrakexið, enn volgt og ilmandi – og ég fékk að smakka. Það var ekki aftur snúið: ég varð að fá uppskriftina.

Þetta er klassískt, íslenskt hafrakex sem er stökkt, bragðgott og passar fullkomlega með smjöri og osti.

Auglýsing

Lillý segir að hún leiki sér stundum með uppskriftina, geri hana grófari með heilhveiti og grófu haframjöli og noti vatn í stað mjólkur. En upprunalega uppskriftin stendur alltaf fyrir sínu – einföld og afar góð.

Hafrakex sem minnir á bernsku, kaffiboð og hlýjar stundir við eldhúsborðið.

–  STÖÐVARFJÖRÐUR  – HAFRAKEX  – KAFFIMEÐLÆTI  –

.

Hafrakex mömmu er gott með smjöri og osti

 

Hafrakex mömmu. Allt hrært saman (smjörið mjúkt) og flatt út, frekar þunnt. Pikkið það svo með gaffli og skerið út tígla. Bakið.

Einfalt, stökkt og ómótstæðilegt – svona á alvöru hafrakex að vera.

Fleira áhugavert:

— Graflax  – Bessastaðir  – Humar  – Muffins  – Rabarbari  – Póstlistinn –

Fyrri færslaGamaldags heilhveitibrauð
Næsta færslaÍs Grand Marnier