Bláberjalummur

Bláberjalummur – mjúkar og safaríkar lummur með ferskum berjum

0
Auglýsing

Bestar nýsteiktar, með smjöri og hunangi – og góðu kaffi með. Mjúkar og safaríkar bláberjalummur sem gera morgnana aðeins betri.
Bestar nýsteiktar, með smjöri og hunangi – og góðu kaffi með. Mjúkar og safaríkar bláberjalummur sem gera morgnana aðeins betri.

Bláberjalummur

Þessar lummur eru fullkomnar í helgarbröns, sem léttur eftirréttur eða einfaldlega þegar manni langar í eitthvað gott með kaffinu. Berin gera þær extra safaríkar og fallegar á disk.

Auglýsing

„Mig langaði rosalega í lummur þegar ég vaknaði og þar sem ég er á kvöldvakt þá hafði ég tíma í svoleiðis dúllerí. Þessi uppskrift er bara mjög holl, þannig það má alveg borða hana samviskulaust ef þið eruð að minnka hveiti og sykur.” þannig skrifar Fanney Sizemore á netið og auðsótt var að fá að birta uppskriftina. Fanney hefur prófað allskyns útgáfur af hollari lummum en finnst þessi sú besta. „Er líka að reyna að bæta við mig próteinum þannig gott að hafa grísku jógúrtina”

.

FANNEY SIZEMORELUMMURBLÁBERBLÁBERJALUMMUR

.

Bláberjalummur

120 g hrein Grísk jógúrt
1 meðalstór banani
80 g haframjöl
2 egg
4 msk mjólk að eigin vali
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
Bláber
Ég notaði svo smá heilhveitispelt til að þykkja aðeins deigið. (1/2 dl)
Allt sett í matvinnsluvél eða blandara fyrir utan bláberin. Þeim er blandað varlega saman eftir að deigið er orðið smooth. Svo eru bara steiktar lummur upp úr smjöri og álegg að eigin vali. Ég notaði bláber, jarðarber, smjörklípu og oggupínkuponsu hunang.

Bestar nýsteiktar, með smjöri og hunangi – og svo gott kaffi með.

Fleira áhugavert:

Ávextir með Daimrjóma Sítrónu linguine Nigellu — Brún lagkaka — Laufabrauð, eitt það allra besta –  Heill kjúklingur í ofni,  safaríkur og með stökkri húð — Frönsk súkkulaðiterta, ein sú allra besta — Elínarkökur — Veislur hjá A&B — 

.

Fyrri færslaVeitingar fyrir kosningakaffi
Næsta færslaMatarborgin Kraká