Færeyski rabarbararétturinn

Færeyskur rabarbaraeftirréttur með rjóma og stökkum mulningi

0
Auglýsing
Þessi færeyski rabarbararéttur sameinar allt það besta: súrsætan rabarbara, silkimjúkan rjóma og stökkan mulning.

Færeyski rabarbararétturinn

Ásu Berglindi kynntist ég í Listaháskóla Íslands þegar ég vann þar og hún stundaði nám við Tónlistardeildina. Hún vakti strax athygli fyrir það hversu blátt áfram hún var, flink í samskiptum, þrælklár og ósérhlífin. Hún lætur verkin tala. Það kom mér því ekki á óvart þegar hún síðar fór á þing, enda hefur hún verið öflug á mörgum sviðum samfélagsins síðan þá.

Ása Berglind fór nýlega á fund Vestnorræna ráðsins í Færeyjum og fékk þar tvisvar sinnum þennan dásamlega rabarbaraeftirrétt. Þetta er klassískur færeyskur rabarbararéttur – silkimjúk rabarbarakompott, þeyttur rjómi og stökkur haframjölsmulningur. Einfalt, en ómótstæðilega gott.

Auglýsing

Við smökkuðum réttinn saman yfir kaffibolla og vorum sammála um að þetta væri algjört sælgæti. Maður veltir því eiginlega fyrir sér hvort svona rabarbaraeftirréttur ætti ekki að vera þjóðarréttur hér á Íslandi, í þessari sannkölluðu rabarbaraparadís.

—  RABARBARI  – FÆREYJAR  – EFTIRRÉTTIR  –  MULNINGUR   –  ÞORLÁKSHÖFN  –

.

Í kaffi hjá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur í Þorlákshöfn

 

Færeyski rabarbararétturinn

600 g rabarbari í 2–3 cm bitum
120 g sykur
1 vanillustöng eða 1 tsk vanillumauk
3 msk vatn.

Sjóðið mjög varlega í 12-15 mínútur. Markmiðið er að um helmingur bitanna haldi lögun sinni. Kælið alveg.

Rjómalag
500 ml rjómi
1–2 msk flórsykur
1 tsk vanilla

Þeytið aðeins minna en venjulegan kökurjóma; hann á að vera mjúkur og silkikenndur.

Kexmulningur
75 g haframjöl
75 g hveiti
75 g púðursykur
75 g kalt smjör
örlítið salt

Myljið saman, bakið við 180°C í 12–15 mínútur þar til gullið og kælið.

Samsetning
Setjið í skál:
Rabarbarakompottu.
Þykkt lag af rjóma.
Crumble ofan á rétt áður en borið er fram.

Færeyski rabarbararétturinn

Fleira áhugavert:

  Steiktur fiskur í brúnni sósu   — Bláberjaterta, bærilega góð hráterta    — Nautakjötssalat með límónu og engifersósu   —  Heill kjúklingur í ofni – safaríkur og með stökkri húð  —  Geitfjársetur á Háafelli   –  

Fyrri færslaKoníaks-rabarbarahlaup