Fiskisúpa Eika
Léttar og rjómalausar fiskisúpur eru orðnar mun algengari en áður, eftir því sem heilsubylgjunni vex ásmegin. Stundum er nú samt gaman að rifja upp gömlu, góðu rjómasúpurnar og eitt er víst að þessi margverðlaunaða súpa frá honum Eika (í Eikagrilli sem var) er svo mikil snilld, að fólk emjar af ánægju og spyr undantekningalaust hvort það megi fá uppskriftina.
Hún er m.a.s. svo góð að ef maður vill drýgja hana fyrir stórt partí með nokkrum lítrum af fisksoði (soðið vatn, fiskkraftur, cayenne á hnífsoddi, pipar, fennelduft), verður hún samt sem áður himnesk.
💥
— FISKISÚPUR — SÚPUR — FISKUR — FISKUR Í OFNI — EIRÍKUR —
💥
Fiskisúpa Eika
1 dl laukur
1 dl sellerí
1 dl sveppir
1 dl paprika (3 litir)
1 dl fennel (eða fennelduft)
1 dl blaðlaukur
Saxið allt smátt og látið krauma svolitla stund í olíu .
5 hvítlauksrif
1 1/2 msk karrí
2 msk rifsberjahlaup
2 dl hvítvín (eða mysa)
2 teningar grænmetiskraftur
2 teningar kjúklingakraftur
3 msk tómatpúre
1/2 l vatn
Setjið allt út í pottinn og látið krauma í 5 mínútur í viðbót.
Bætið 1 1/2 lítra rjóma út í og sjóðið í 5 mínútur.
Skerið 1 kg af fiski í teninga (t.d. humar, lax, rækjur, hörpuskel), skellið út í sjóðandi súpuna. Takið pottinn af hitanum og látið standa nokkrar mínútur.
Smakkið til með salti og pipar.
Skraut: Saxið steinselju og/eða graslauk ofan á, ekki verra að hafa slettu af þeyttum rjóma undir, mjög fallegt. Gott hvítvín og brauð með, bingó.
💥
— FISKISÚPUR — SÚPUR — FISKUR — FISKUR Í OFNI — EIRÍKUR —
💥