Steinaldarbrauð

Steinaldarbrauð, brauð, bakstur plantago ovata forsK trefjar fræ steinaldabrauð steinöld gróft brauð fiber husk glútenlaust brauð gróft brauð paleo bread
Steinaldarbrauð

Steinaldarbrauð

Hef áður skrifað hér um FiberHusk sem er algjört undraefni – það er malað hýði fræja af indversku plöntunni plantago ovata forsk. Margir fá of lítið af trefjum í fæðunni og þá er FiberHusk alveg kjörin viðbót – algjörlega lífrænt. Í upphaflegu uppskriftinni átti að vera möndlumjöl en því miður var það ekki til svo ég notaði rísmjöl. En brauðið bragðaðist afar vel og hér er uppskriftin lítillega breytt. Svo er nú gaman að segja frá því að brauðið er glútenlaust.

-Þegar ég bakaði brauðið í næsta skipti var ekki til kúrbítur svo ég reif niður hálft grænt epli og notaði í staðinn og sleppti ostinum. Enn betra brauð 🙂

.

BRAUÐUPPSKRIFTIRMÖNDLUMJÖLKÚRBÍTURGLÚTENLAUST

.

Steinaldarbrauð

2 dl möndlumjöl (eða rísmjöl)
2 dl hörfræ
2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl graskersfræ
1 dl FiberHusk
2 tsk salt
2 dl rifinn ostur
2 dl rifinn kúrbítur
5 egg
1 tsk (vínsteins)lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
3/4 dl góð olía
ca 1/2 dl vatn (eða rúmlega það).

Blandið öllu saman í skál, setjið í brauðform klætt bökunarpappír eða smurt með olíu. Bakið við 160°C í um klst.

steinaldarbrauð
Hráefnin í steinaldarbrauðið

.

BRAUÐUPPSKRIFTIRMÖNDLUMJÖLKÚRBÍTURGLÚTENLAUST

— STEINALDARBRAUÐ —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Kaffimeðlæti í fermingarveisluna – hugmyndir

Fermingarveisla2015

Kaffimeðlæti í fermingarveisluna. Heimagerðar veitingar í fermingarveislum eru alltaf hlýlegar, þó að vissulega sé þægilegast að fá þær sendar heim. Aftur á móti er ekki gaman að taka á móti gestunum með sveittan skallann. Góð skipulagning er því höfuðatriði. Fyrst þarf að ákveða hvað á að bjóða upp á og vert að hafa í huga að fjöldi sorta er ekki sama og gæði. Hentugast og best er að hafa fáar, en góðar! Valið er því mikilvægt.

Grænmetislasagna Dóru Emils

Lasagna

Lasagna Dóru Emils. Satt best að segja er það Dóru að þakka að ég fékk áhuga á grænmetisfæði hún er afar fær á því sviði. Í mínu ungdæmi var svona matur kallaður gras og mikið hlegið að grænmetisætunni Fríðu Fennel í þættinum "Gættu að hvað þú gerir maður" En nú er öldin aldeilis önnur og við vitum að grænmeti gerir okkur gott enda eru fleiri og fleiri sem taka mataræði sitt í gegn.