Baka með sætum kartöflum
Það er ágætt að útbúa bökudeig deginum áður og geyma í ísskáp, reyndar geymist það í nokkra daga. Bökur minna mig alltaf á vorið og sumarið. Það er ljúft að sitja úti og borða grænmetisböku með litskrúðugu sumarlegu salati. Bökur eins og þessa þarf ekki að bera fram beint úr ofninum, hún er jafngóðu ef ekki betri borin fram við stofuhita.
— BÖKUR — SÆTAR KARTÖFLUR —
.
Baka með sætum kartöflum
Botn:
3 dl (heil)hveiti
1 dl möndlumjöl
1 dl möluð hörfræ
1/3 tsk kanill
1/2 tsk salt
1 dl olía
1/2 – 1 dl vatn
Fylling:
300 g sætar kartöflur, skrældar og skornar í sneiðar
300 g gulrætur skornar í sneiðar
1 laukur skorinn í þunnar sneiðar
3 hvítlauksgeirar, pressaðir
100 g fetaostur
3 egg
2 1/2 dl grísk jógúrt
1 tsk Dijon sinnep
1 tsk timían
salt og pipar
steinselja
Botn: Setjið öll hráefnin saman í skál og blandið saman með höndunum. Látið bíða á meðan fyllingin er útbúin.
Fylling: Setjið kartöflur, gulrætur, lauk, hvítlauk og fetaost í skál. Blandið saman í annarri skál eggjum, jógúrt, sinnepi, timíani, salti og pipar. Hellið blöndunni yfir grænmetið og blandið saman. Þjappið deiginu í botninn og upp með hliðunum á kringlóttu bökuformi. Hellið „soppunni” yfir bökudeigið og bakið við 170° í um 40 mín. Stráið ferskri steinselju yfir.
.
— BÖKUR — SÆTAR KARTÖFLUR —
.