Súkkulaðiterta með viðhöfn
Hneturnar og pralínið úr þeim gera þessa tertu að sérstakri upplifun. Stökkt kornfleksið saman við pralínsmjörið gerir fólk þannig á svipinn, að það virðist hafa komist til himnaríkis. Alla vega er þetta hátíðaterta með þremur kremum (!) og gott að hafa góðan tíma til að útbúa. En stundum er gaman að hafa mikið við, t.d. á jólum, páskum, stórafmælum eða brúðkaupum.
— PÁSKATERTUR — SÚKKULAÐITERTUR — PÁSKAR —
.
Súkkulaðiterta með viðhöfn
Svampbotn:
50 g kakó
200 g hveiti
325 g sykur
1 tsk lyftiduft
90 ml matarolía
6 eggjarauður
6 eggjahvítur
1/2 tsk borðedik
Nammi til að skreyta með
Pralín:
75 g flórsykur
150 g steiktar heslihnetur
1 msk matarolía
Kornfleks lag:
150 g 70% súkkulaði
45 g kornfleks
Vanillusmjörkrem:
4 hvítur
240 g sykur
2 g vanilla extrakt
225 g smjör, mjúkt
100 g súkkulaði
Súkkulaðibráð:
75 g 70% súkkulaði
50 g smjör
1 msk hunang
Stillið ofninn á 160°C. Setjið kakó í 200 ml sjóðandi vatn og kælið. Blandið saman í aðra skál hveiti, sykri, lyftidufti og svolitlu salti. Hrærið saman olíu og eggjarauður. Blandið öllu saman, hveitiblöndu, rauðum og kakóblöndu. Þeytið eggjahvítur með ediki og blandið varlega við deigið. Smyrjið 10 cm hátt 23 cm form (setjið tvöfalt lag af bökunarpappír á barmana til að hækka það) og hellið deiginu í. Bakið í 35-40 mín. Þegar kakan er bökuð, setjið hana á hvolf á grind.
Pralín: Bræðið flórsykur við meðalhita í 1-2 mín. Hrærið saxaðar heslihnetur hratt saman við, setjið á bökunarpappír og salt yfir milli fingra. Kælið og setjið í matvinnsluvél í stutta stund, takið helminginn af og setjið í skál. Setjið olíuna í vélina og þeytið þar til það er orðið að smjöri.
Kornfleks lag: Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og blandið 2/3 af pralínsmjörinu saman við og síðan kornfleksi.
Vanillusmjörkrem: Setjið hvítur og sykur í glerskál yfir vatnsbað og þeytið þar til sykurinn er bráðinn og hvíturnar stífar. Takið af hitanum, blandið vanillu út í og látið kólna niður í herbergishita. Þeytið mjúkt smjörið út í smám saman. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið í 6 mín. Blandið varlega saman við smjörkremið.
Skerið kökuna í þrjú lög. Breiðið helminginn af kornfleksblöndunni á neðsta lagið og 1/4 af smjörkreminu ofan á það. Endurtakið á næsta lag og þegar efsta kökulagið er komið ofan á, smyrjið afgangi af smjörkreminu ofan á og á hliðar (lítið í einu og leyfið að setjast á milli) og setjið í kæli í hálftíma.
Súkkulaðibráð: Bræðið súkkulaði, smjör og hunang yfir vatnsbaði. Hrærið afgang af pralíninu og kælið í herbergishita, en látið ekki setjast. Hellið yfir og skreytið með Ferrero Rocher. Skreytið með hnetunum sem eftir urðu þegar pralínið var búið til, í kring neðst.
Páskatertur síðustu ára:
Páskatertan 2014 var með döðlubotni, eggjakremi og marengs
Páskatertan 2013: Daim-ís-terta
Páskar 2012: Brownies á páskum (já, já ég veit að brownies er ekki terta…)
.
— SÚKKULAÐITERTA MEÐ VIÐHÖFN —
.