BEINÞYNNING og mjólk
Stundum er því haldið fram að við þurfum að drekka mjólk til að forðast beinþynningu, sérstaklega hefur þessu verið haldið að konum. Neysla á mjólkurvörum í heiminum er mest í Finnlandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum og Englandi. Það merkilega er að beinþynning mælist mest hjá Finnum, Svíum, Bandaríkjamönnum og Englendingum.
Svo virðist sem mikil mjólkurdrykkja dragi ekki úr beinþynningu og líkum á beinbrotum, samkvæmt grein í læknaritinu British Medical Journal. Rannsókn var framkvæmd í Svíþjóð og leiddi í ljós að konur sem drukku fleiri en þrjú mjólkurglös á dag voru í raun líklegri til þess að brjóta í sér beinin en þær sem drukku minna en þrjú glös.
.