Marokkósk appelsínukaka með apríkósum
Björk Jónsdóttir er af mörgum kunn fyrir tertur sínar og annað kaffimeðlæti. Hún hefur oft komið við sögu á þessu bloggi, hefur oftar en ekki átt uppskriftir á árlegu listunum yfir vinsælustu uppskriftirnar. Má þar nefna Kókosbolludraum og Sítrónuböku með ferskum berjum
Eins og annað sem frá Björk kemur er þessi appelsínukaka mjög góð. Blandan af möndlumjöli, apríkósum, pistasíum og appelsínum er himnesk.
— BJÖRK JÓNSD — FÖSTUDAGSKAFFI — MAROKKÓ — APPELSÍNUR — LISTAHÁSKÓLINN —
.
Marokkósk appelsínukaka með apríkósum
2 stórar appelsínur án safans
2 dl apríkósur
1/2 búnt fersk minta
6 egg
250g sykur
1L vatn (soðið með appelsínunum)
275g möndlur(mixaðar í mjöl) eða möndlumjöl
1 tsk lyftiduft
2 msk pistasíuhnetur
1 springform með lausum botni 22cm
Þeytið egg og sykur vel saman uns létt og ljóst, blandið möndlumjöli, lyftidufti og pistacíuhnetum útí eggjamassannn
Kreistið safann úr appelsínunum og sjóðið þær við hægan hita í 1lítra vatns í 1 klst. Kælið. Setjið á disk, skerið í litla bita með börkinn utanum. Saxið apríkósurnar gróft, fínskerið mintuna, þessu er blandað saman og sett í mixer og mixað, ásamt appelsínumassanum og hrærið loks saman við deigið.
Bakið við 200°C í ca 1 klt. Kælt, Safinn af appelsínunum ásamt smá sykri soðið saman, pikkað með gafli í kökuna og safanaum helt yfir, meta eftir þörfum hve mikið af safanum fer yfir. Flórsykur stráð yfir í lokinn og e.t.v. raspaður börkur af einni appelsínu.
#2017Gestabloggari6/52 — BJÖRK JÓNS — MAROKKÓ —
.
— BJÖRK JÓNSD — FÖSTUDAGSKAFFI — MAROKKÓ — APPELSÍNUR — LISTAHÁSKÓLINN —
.