Gulrótakaka Aldísar frænku
Sumar kökur eru betri en aðrar segir Eyjólfur Eyjólfsson sem bauð okkur heim á dögunum. „Gulrótarkaka móðursystur minnar er sú kaka sem ég kannski held mest upp á – ef til vill vegna þess að hún er í senn hátíðleg og ósköp hversdagsleg. Þó svo að móðir mín sé þekkt fyrir íburðarmiklar stríðstertur hef ég yfirleitt hneigst meira til kökubaksturs eins og ég kynntist í sveit sem strákur. Þá á ég að sjálfsögðu ekki við sunnudagshnallþórurnar heldur hinar stóísku og yfirveguðu jóla- og marmakökur sem gengu í svo til heilagt hjónaband með ógerilsneyddri kúamjólkinni.
— GULRÓTATERTUR — EYJÓLFUR EYJÓLFSSON —
.
Gulrótakaka Aldísar frænku virðist því búa yfir búsældarlegri rómantík og borgaralegum hátíðleika – en einnig er yfir henni heimsborgaralegur blær. Hvort heldur sem gulrótarkakan á uppruna sinn að rekja vestur yfir haf til Bandaríkjanna eða til annarra heimsálfa fær krydd-dúettinn engifer og kanill bragðlaukana til að ferðast langt út fyrir landsteinana.” segir Eyjólfur söngvari Eyjólfsson
Gulrótakaka Aldísar frænku
5 dl hveiti
2 tsk lyfitduft
1/2 tsk matarsóti
1 tsk salt
1 tsk kanill
3-4 dl sykur
1 dl matarolía
4 egg
5 dl rifnar gulrætur
1 tsk engiferduft
1/2 kurlaður ananas (má sleppa) – muna að hella safa af.
Hrærið öllu saman og bakið í springformi við 180°C í u.þ.b. 50 mínútur neðarlega / neðst í ofni.
Krem:
400 gr rjómaostur
3-4 msk flórsykur
Rifinn börkur af hálfri sítrónu
Þeytið rjómaostinn vel í hrærivél með flórsykrinum. Rífið börk með rifjárni af hálfri sítrónu og blandið vel saman við. Hægt er að skera kökuna til helminga og setja krem bæði á milli og ofan á kökuna eða halda henni heillri og setja allt kremið ofan á eða yfir alla kökuna.
🥕
— GULRÓTATERTUR — EYJÓLFUR EYJÓLFSSON —
— GULRÓTAKAKA ALDÍSAR FRÆNKU —
🥕