Soðið hangikjöt og jafningur

Soðið hangikjöt og jafningur hangilæri jafning uppstúf hvítsósa hvít sósa með hangikjöti hangikjötsjafningur þjóðarréttur hvernig á að sjóða hangikjöt ? þjóðlegt þjóðlegur matur íslenskur matur íslenskt hangiframpartur uppstúf grænar baunir kartöflur jólamatur þjóðlegt þjóðlegur matur íslenskur matur icelandic food traditional icelandic food smoked lamb uppstúfur hversu lengi á að sjóða hangikjöt soðið hangikjöt
Soðið hangikjöt, grænar baunir, kartöflur og jafningur. Mynd: Kjarnafæði

Soðið hangikjöt og jafningur – þjóðhátíðarréttur íslendinga. Ilmurinn af soðnu hangikjöti er ómótstæðilegur*

-LAMBAKJÖTJÓLINHANGIKJÖTFLATBRAUÐLAUFABRAUÐ

.

Hangilæri eða hangiframpartur

Setjið hangikjötið í stóran pott. Hellið köldu vatni yfir þar til það hylur kjötið. Látið suðuna koma rólega upp á vægum hita. Slökkvið á hellunni þegar suðan kemur upp. (Ath. sumir kjósa að láta kjötið sjóða í 20-30 mín. áður en slökkt er undir). Látið ekki bullsjóða í pottinum. Hafa skal í huga að hér er verið að miða við gömlu góðu steinhelluborðin en ef um er að ræða keramik eða span helluborð er vissara að láta það sjóða vægt aðeins lengur áður en það fær svo að kólna rólega í pottinum.
Hafið pottinn á hellunni og látið kjötið kólna í pottinum undir loki.
Berið hangikjötið fram með jafningi, soðnum kartöflum, grænum baunum og laufabrauði.

Jafningur

50 g smjör
50 g hveiti
1 l mjólk
½ tsk salt
1-3 msk sykur
ögn hvítur pipar
Bræðið smjörið í potti, hrærið hveitinu saman við, þannig að úr verði smjörbolla.
Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns kekkjalaust. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið vel í á meðan.
Kryddið með salti, sykri og pipar eftir smekk

*Af heimasíðu Kjarnafæðis
Auglýsing

Meira úr sama flokki

Portvín, gráðaostur og fleira góðgæti úr Búrinu

Portvín, gráðaostur og fleira góðgæti úr Búrinu. Verð nú bara að fá að deila því með ykkur að ég fékk senda þessa dásamlegu matarmiklu körfu frá Búrinu. Þara er stórt stykki af Gráðaosti, Sandeman portvín (það má víst ekki segja Púrtvín lengur), einhverri dásamlegri fíkju, hnetukexi og ég veit bara ekki hvað og hvað. Það er bara fátt sem gleður mig meira þessa dagana. Gráðosturinn fær sparimeðferð og dekur hjá Búrverjum. Þar er nostrað við hann skrúbbaður vel og settur í Sandemans Portvínsbað í 3-4 vikur. Eftir þann tíma verður osturinn gullfallegur og vínrauður og öll sætan úr víninu fer djúpt inni ostinn... algjör dásemd með hægbakaðri fíkjukúlu frá Calabría 🙂