Fimmtudagskaffi í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur
Starfsfólkið í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur skiptist á að koma með kaffimeðlæti með kaffinu á fimmtudagsmorgnum. Jón Birgir og Ísak tóku tóku vel í að deila herlegheitunum sem þeir komu með með lesendum síðunnar.
Pizzasnúðar með pepperoni, skinku og piparosti
900 g hveiti
40 g sykur
½ tsk salt
100 g smjör, brætt
500 ml mjólk
1 pakki þurrger (12 g)
Fylling :
1 bréf skinka
1 bréf pepperoni
pizzasósa, magn eftir smekk
rifinn ostur, magn eftir
smekk
rifinn piparostur
oreganó krydd
Aðferð:
Hitið mjólk í potti, mjólkin á að vera volg.
Vekjið gerið í mjólkinni, en það tekur um það bil fimm mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin.
Bræðið smjör.
Blandið öllu saman í skál og hnoðið deigið mjög vel, ég leyfi hnoðaranum á hrærivélinni minni að sjá um verkið en þá tekur það um bil bil fimm til sex mínútur.
Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að lyfta sér í rúmlega klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast og jafnvel þrefaldað stærð sína.
Hitið ofninn í 180°C.
Skiptið deiginu í tvennt, stráið hveiti á borðflöt og hnoðið létt. Fletjið deigið út með kökukefli.
Smyrjið deigið með pizzasósu, skerið niður skinku og pepperoni og leggið yfir. Sáldrið rifnum mozzarella osti yfir og kryddið til með oreganó.
Rúllið deiginu saman og skerið hverja rúllu í 18 – 20 bita.
Leggið bitana beint á pappírsklædda ofnplötu eða í bollakökuform eins og ég gerði.
Penslið snúðana með eggjablöndunni og sáldri rifnum mozzarella osti yfir og kryddið gjarnan með oreganó.
Bakið snúðana við 180°C í 10 – 12 mínútur eða þar til snúðarnir eru gullinbrúnir.
Súkkulaðihjúpaðar hnetusmjörskúlur
115 g brætt smjör
1 1/2 b hnetusmjör
2 1/2 b flórsykur
175 g súkkulaði
Blandið saman smjöri, hnetusmjöri og flórsykri
Útbúið litlar kúlur og frystið í um 20 mín.
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði.
Stingið tannstönglum í kúlurnar og dýfið þeim í súkkulaðið. Setjið á bökunarpappír og kælið.
Döðlu & ólífupestó
Ein krukka af rauðu pestói (t.d. pestó frá Sacla)
Hálf krukka fetaostur og smá af olíunni líka
1 1/2 dl svartar ólífur gróft saxaðar
1 1/2 dl döður, smátt saxaðar
1 1/2 dl af steinselju, smátt söxuð
1 1/2 dl af brotnum kasjúhnetum
Tvö hvítlauksrif, smátt skorin eða pressuð
Aðferð:
Allt sett í skál og blandað saman. Gott að geyma í kæli í nokkra tíma ef tími gefst.
Púðursykursmarengsterta með Snickerskremi
4 eggjahvítur
2 dl púðursykur
1 dl sykur
Þeytið vel saman þar til marengsinn er stífur og glansandi.
Bakið tvo botna, uþb 23 cm í þvermál á 150°C í um 50 mín. Látið kólna.
Á milli:
1 peli rjómi
1 stk Snickers, saxað fínt
Stífþeytið rjómann, bætið Snickers saman við og setjið á milli botnanna
Ofan á:
1 Snickers
60 g smjör
4 eggjarauður
3 msk sykur
Bræðið Snickers og smjöri í potti.
Þeytið eggjarauður og sykur og hellið úr pottinum blandið vel saman.
Hellið ofan á tertuna.