Í hvað er verið að bjóða?

Í hvað er verið að bjóða kaffiboð veisla heimboð
Það er í alla staði betra ef fólk talar skýrt hvert tilefnið er og líka um veitingarnar.

Þegar við bjóðum fólki heim er gott að taka skýrt fram hvert tilefnið er og einnig hvers konar boð er um að ræða; Kaffiboð, matarboð, koktelboð, giftingarafmæli, Pálínuboð eða afmæli.

KAFFIBOÐVEISLAPÁLÍNUBOÐKOKTELBOÐGIFTINGGJAFIRERU BÖRNIN BOÐIN?AFMÆLI

.

Það getur verið vandræðalegt að mæta í „smá kaffi” og þegar inn er komið er þar fyrir fjölmenni í afmælisveislu, enn verra getur verið ef fólk tók með sér gjafir.

Það er alltaf skilgreininaratriði hvað eru léttar veitingar. Ekki ólíklegt að felstir flestir hugsi þær sem smárétti ýmiskonar. Léttar veitingar geta vart talist full máltíð, oft er um að ræða standandi boð þar sem veitingarar eru á borði eða gengið með á bökkum milli gesta.

Það er í alla staði betra ef fólk talar skýrt hvert tilefnið er og ekki síður um veitingarnar. Einnig gott að komi fram hvort börnin eru boðin líka.

🌸

— Í HVAÐ ER VERIÐ AÐ BJÓÐA? —

🌸

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Konfektterta

Konfektterta. Á meðan ég ritstýrði blaði Franskra daga fékk ég oft saumaklúbba til að vera með uppskriftir í blaðinu. Einu sinni voru þar Fáskrúðsfjarðarkonur í Félagi austfirskra kvenna. Sigurbjörg frænka mín Bjarnadóttir bakaði Konfekttertu og kom með. Alveg stórfín terta sem ber nafn með rentu.

Ítölsk eplakaka – einstaklega góð

Ítölsk eplakaka. Stundum fæ ég sendar uppáhaldsuppskriftir fólks og er afar þakklátur fyrir. Hins vegar gleymi ég stundum að skrá hjá mér hver sendi, það á við um þessa ítölsku eplaköku. Einstaklega ljúf og bragðgóð terta sem á alltaf við. Takk fyrir hver sem sendi.