Logn á Hótel Ísafirði
Það var sko ekki lognið hjá okkur þegar við borðuðum á veitingastaðnum Logni á Hótel Ísafirði með Geigei vinkonu okkar. Þó að Geigei sé komin er á tíræðisaldurinn ber hún þess engin merki, alveg eldhress og til í að taka þátt í samkvæmislífinu, sannkölluð lady sem hefur frá mörgu skemmtilegu að segja af mannlífinu á Ísafirði, skemmtunum og menningu, enda hlógum við okkur máttlaus.
Hótel Ísafjörður hefur fengið hressilega andlitslyftingu, búið er að gjörbreyta jarðhæðinni og byggja við. Nýendurgerður veitingastaðurinn nefnist Logn, einstaklega vel heppnuð breyting. Þar er nú móttaka, fallegur bar og veitingasalur sem tekur tæplega hundrað manns í sæti. Stórir gluggar sunnan og norðan megin gera staðinn bjartan og aðlaðandi. Útsýnið út á Pollinn er dásamlegt, bæði á vetri sem sumri.
Hinn ítalski Antonio stóð vaktina í eldhúsinu og dekraði við okkur ásamt þjónustufólkinu í salnum.
— ÍSAFJÖRÐUR — GEIGEI — VEITINGASTAÐIR — ÍSLAND -– BERGÞÓR —
.
AÐ LOKUM: Okkur finnst mjög gaman að fara út að borða, smakka nýja rétti og deila með gestum síðunnar. Ef þið viljið umfjöllun er netfangið albert.eiriksson@gmail.com
.
— ÍSAFJÖRÐUR — GEIGEI — VEITINGASTAÐIR — ÍSLAND -– BERGÞÓR —
.