Við lok fjögurra ára dvalar við Tónlistarskóla Ísafjarðar er áhugvert að horfa um öxl og taka saman brot af því sem við höfum verið að stússast í skólanum fyrir utan hin hefðbundnu skólastjórastörf.
Húsið sem Tónlistarskólinn er í var byggt fyrir Húsmæðraskólann Ósk. Fyrir tveimur árum var sett upp sýning um húsmæðraskólann. Munir úr skólanum voru vandlega geymdir og auðsótt að fá þá á sýningu. MEIRA HÉR.
Í tilefni 75 ára afmælis skólans var sett upp sögusýning um fjölbreytta og líflega starfsemi Tónlistarskólans MEIRA HÉR. Auk þess fengu Hamrar, tónleikasalur skólans andlitslyftingu, haldnir voru hádegistónleikar og heimilistónar svo eitthvað sé nefnt.
Viðburðaríkum og ánægjulegum árum á Ísafirði er lokið. Stoltir, sáttir og þakklátir en með trega í hjarta, kveðjum við Bergþór, skólastjórinn og aðstoðarskólastjórinn, nú Ísafjörð.
Takk fyrir okkur elsku besta samstarfsfólk, nemendur, foreldrar og aðrir Ísfirðingar.
— ÍSAFJÖRÐUR — TÓNLISTARSKÓLINN — HÚSMÆÐRASKÓLINN ÓSK —
♥️♥️

🇮🇸