
Hampmjólk – næringarrík og einföld plöntumjólk
Sú var tíð að flestir á þessu landi trúðu því að við kæmumst ekki af án kúamjólkur. Gamla tuggan um að við yrðum að drekka mjólk til að fá kalk á vart lengur við. Í dag vitum við að til eru fjölmargir kalkgjafar sem eru ekki bara jafngóðir, heldur oft betri og auðmeltari en kúamjólk.
— HAMPFRÆ — VEGAN — MJÓLK — MAGNESÍUM — MJÓLKURÓÞOL —
.
Í síðustu búðarferð gleymdi ég að kaupa mjólk. Í stað þess að fara aftur út fór ég á netið – og rakst þar á uppskrift að hampmjólk. Hún reyndist bæði einföld, bragðgóð og einstaklega næringarrík.
Hvað eru hampfræ?
Hampfræ koma af Cannabis sativa plöntunni – sömu tegund og notuð er við kannabisframleiðslu, en hér er um allt annað afbrigði að ræða. Hampfræ innihalda ekkert vímuefni og eru löngu orðin viðurkennd sem heilnæm og örugg matvara.
Næringargildi hampfræja
Hampfræ eru sannkölluð ofurfæða og innihalda meðal annars:
✔️ Allar tíu lífsnauðsynlegu amínósýrurnar sem líkaminn getur ekki framleitt sjálfur
✔️ Omega 3, 6 og 9 fitusýrur í mjög hagstæðu hlutfalli
✔️ Magnesíum, sem styður við vöðva- og taugastarfsemi
✔️ Járn, sink og kalíum, mikilvæg fyrir blóð, ónæmiskerfi og vökvajafnvægi
Hampmjólk er því frábær kostur fyrir þau sem vilja draga úr mjólkurneyslu, eru með mjólkuróþol eða einfaldlega vilja fjölbreyttari og náttúrulegri næringu.
Hampmjólk – uppskrift
1 bolli hampfræ
5–6 bollar vatn
1-2 döðlur, lagðar í bleyti
(eða annað til að sæta, t.d. bútur af banana, fíkju eða öðrum uppáhalds ávöxtum – einnig má nota hunang)
Setjið hampfræ og vatn í matvinnsluvél eða blandara og maukið vel þar til mjólkin er slétt og rjómakennd.
Geymið í lokuðu íláti í ísskáp.
Hristið fyrir notkun.

