Það þarf ekki alltaf að fara langt til að komast í Suðurlandastemningu, án þess að vakna um miðja nótt í flug og ferðast klukkutímum saman suður á bóginn. Í 27 Mathús í Víkurhvarfi í Kópavogi er framandi og spennandi Miðjarðarhafsmatreiðsla í gangi, allt frá Spáni til Líbanon. Staðurinn er allstór og þar eru ákaflega vönduð húsgögn sem teiknuð eru og smíðuð af frönskum húsgagnahönnuði. Það er skömm frá því að segja að ég hafði ekki komið fyrr á þennan notalega stað, en Helgi og fjölskylda eru búin að standa vaktina í sex ár. Þarna er alltaf verið að skapa eitthvað nýtt og prófa í eldhúsinu, þannig að það er ekki víst að maður gangi að réttum vísum eftir einhverja mánuði, en greinilega allt gott sem boðið er upp á.
Við byrjuðum á mintufordrykk forréttum af ýmsu tagi – eða mezes, eins og þeir eru kallaðir í Sýrlandi. Þarna var ítölsk kindaskinka, tómatar, paprika, ólífuolía frá bónda í Alsír, heimatilbúinn ricotta, hummus, ólífur o.fl.Djúpsteikt eggaldin með rjómaostiSvart Dahl, Beluga svartar baunir sem leysast ekki upp, ásamt pide með feta, tómötum, rauðlauk, grískri jógúrt og ferskum kryddjurtum. Linsubaunir innihalda prótein sem mannslíkaminn nýtir vel og sannarlega leið okkur vel af þessum rétti.Robert Niro á mörg hótel og veitingastaði. Á Greenwich hótelinu hans í New York var kokkur sem fór og sótti svartþorsk sem hann marineraði í miso. Þetta varð uppáhaldsrétturinn hans Niro, en fiskurinn sem var ódýrasti fiskurinn á markaðnum, á 54 cent, hækkaði í 5 dollara á tveimur árum. Hér er íslenskur þorskur notaður, en argentínsk villirækja með ásamt grænertuhummus og grænni kryddjurtaolíu.Nú prófuðum við flamberaðar lambakótilettur, með granateplagljáa og grísku salati. Svolítill kanilkeimur og fleira krydd gaf skemmtilegan keim og kjötið var lungamjúkt.Ribeye steik glóðuð á kolum á bak við hús með sveppasósu og steiktum kartöflum.Krydduð, djúpsteikt jógúrt í fílódeigi, með hinu og þessu kryddi.Púðursykurskaka með súkkulaðibúðingi undirAlbert, Jóna Kristín og Bergþór