
Forsetaísinn
Forsetaísinn er klassískur íslenskur veislueftirréttur frá Þórshöfn á Langanesi og er einfaldur rjómaís með súkkulaði sem ekki þarf ísvél til að útbúa.
Sumarið eftir að Vigdís tók við forsetaembættinu fór hún í opinbera heimsókn til Þórshafnar á Langanesi, þar var henni haldin viðhafnarveisla eins og lög gera ráð fyrir. Í eftirrétt var forláta súkkulaðirjómaís, sem allar götur síðan hefur verið kallaður Forsetaísinn. Þórshafnarbúinn fyrrverandi Ölver Arnarsson og Anna María Gísladóttir kona hans útbúa reglulega Forsetaísinn.
„Brynhildur Halldórsdóttir hreppstjóri og kvenskörungur á Syðra-Lóni, rétt norðan Þórshafnar á uppskriftina. Hún og mamma voru vinkonur og voru saman í kvenfélaginu Hvöt á Þórshöfn og síðan 1981 hefur þetta verið jóla- og páskaísinn hjá mér. Gekk alltaf undir nafninu Forsetaísinn.” segir Ölver, sá hinn sami og færði okkur Vínartertuna góðu á aðventunni.
— VIGDÍS FORSETI — ÞÓRSHÖFN — RJÓMAÍS — SÚKKULAÐIÍS — VÍNARTERTA — KVENFÉLÖG —
.

Forsetaísinn
75 g sykur
4 egg
1/2 l rjómi
125 g dökkt súkkulaði
Vanilludropar
Aðskiljið eggin.
Þeytið eggjarauður og sykur vel.
Stífþeytið rjómann og bætið saman við eggjarauðurnar.
Bætið við vanilludropum og súkkulaði.
Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið þeim við með sleif.
Setjið í form og frystið.

— VIGDÍS FORSETI — ÞÓRSHÖFN — RJÓMAÍS — SÚKKULAÐIÍS — VÍNARTERTA — KVENFÉLÖG —
.

