
Borg sem iðar af lífi, bragði og ótal matarupplifunum
Stórborgin iðar af lífi frá morgni til kvölds. Óteljandi veitingastaðir og kaffihús á hverju horni. Þvílíkur suðupottur – borgin bókstaflega nötrar. Það er erfitt að gera slíkri borg skil í stuttum pistli, þar sem vel yfir átta milljónir manna búa og menning og mannlíf eru jafn fjölbreytt og raun ber vitni.
Víða í verslunum og á veitingastöðum á Manhattan er tónlist spiluð mun hærra en við eigum að venjast. Stundum hefði ekki sakað að vera með eyrnatappa þegar lætin voru sem mest. Einnig var áberandi í sumum búðum að starfsfólkið virtist hafa farið „á öll sölunámskeiðin“ – faglegt og kurteist, svo að maður mátti hafa sig allan við að tæma ekki alla vasa og kort. New York búar eru hins vegar almennt yndislegir í viðmóti eins og Bandaríkjamenn eru upp til hópa, dásamlega opnir og snjallir í léttum samræðum. Svo er nú ekki ónýtt að geta labbað upp í Central park í ró og frið, þar sem fólk röltir, hjólar, hleypur eða nýtur lífsins og gróðurilmsins á bekk.
Maturinn var alls staðar góður, og það sama má segja um kaffið og meðlætið. New York stendur fyllilega undir orðspori sínu sem ein áhugaverðasta matarborg heims.
…og það er kannski einmitt það sem gerir New York svona heillandi – allt er til staðar, bara á aðeins meiri styrk en við eigum að venjast.
— New York —Matarborgir— Bandaríkin —
🇺🇸

Matarganga. Eins og oft áður fórum við í matargöngu með fleira fólki. Gengum um Kínahverfið og litlu-Ítalíu og smökkuðum eitt og annað. Á myndinni hér aðeins brot af því sem við gæddum okkur á.

Brunch. Larry og Kate sem buðu okkur til Ameríku voru búin að velja glæsilega veitingastaði og buðu okkur m.a. í brunch á franskan stað, La Grande Boucherie sem er nýlegur staður í borginni, en umhverfið er hannað þannig að maður fær á tilfinninguna að maður sitji á klassísku Parísarbístrói frá fyrri tíð. Rýmið er glæsilegt, með Art Nouveau-áhrifum, háu glerþaki og fallegum smáatriðum sem skapa bæði hlýlega og fágaða stemningu. Það er því ekki bara maturinn sem dregur fólk að, heldur líka upplifunin sjálf – að stíga inn í annan heim, þar sem París og New York mætast á skemmtilegan hátt.

Osteria La Baia er ítalskur staður sem vel má mæla með. Við fengum okkur lasagna og smokkfisksblek-spaghetti með frutti di mare, báðir réttirnir einstaklega vel heppnaðir. Enduðum á ólífuolíuköku með sítrónu ricotta sem kom skemmtilega á óvart. Falleg framsetning, góð hráefni og notaleg stemning – góður kostur í Midtown, einn af þúsundum.

Í Juilliard skólanum hittum við góðan vin, Evan Fein, tónskáld og píanóleikara, sem er mörgum Íslendingum að góðu kunnur. Við kynntumst honum við óperuppsetningu á Seyðisfirði fyrir nokkrum árum – sjá hér. Evan sýndi okkur Juilliard skólann, þar sem hann er prófessor.

Í Metropolitan Opera House sáum við La traviata eftir Verdi. Tónlistin er auðvitað himnesk, uppfærslan og flytjendurnir eins og best verður á kosið, ekki síst hin bandaríska Amanda Woodbury í titilhlutverkinu. Aðrir einsöngvarar, hljómsveit, kór, sviðsmynd, lýsing og búningar – það bara gekk allt upp. Þessi upplifun á eftir að sitja lengi í manni, töfrastund „at the Met“.

Ellen’s Stardust Diner er ekki bara veitingastaður heldur upplifun. Þjónarnir eru jafnframt söngvarar og taka lög úr þekktum söngleikjum á meðan þeir þjóna til borðs, sem skapar mjög líflega stemningu. Staðurinn er vinsæll hjá bæði heimamönnum og ferðamönnum, og það er eitthvað sérstakt við að sitja yfir dæmigerðum amerískum diner-mat á meðan Broadway-stemningin fyllir salinn … og vonandi stendur einhver af þjónunum á sviði á Broadway fyrr en síðar, því að þeir eru komnir til New York með þann draum í farteskinu.

Death Becomes Her er sannkölluð skemmtun frá upphafi til enda. Söngleikurinn er glæsilegur, fyndinn og yfirfullur af orku, með stórkostlegum búningum, sviðsmynd og tónlist. Það var valinn maður í hverju rúmi – leikarar, söngvarar og dansarar, tímasetningarnar ótrúlega nákvæmar. Þetta er klassísk Broadway-upplifun eins og töfrabrögð frá upphafi til enda, þar sem höfuðið á söngvurunum getur snúist um 360° eða að þeir fara í lúshægum kollhnísum í loftinu niður stiga.

Easter Parade & Bonnet Festival. Á páskadag lentum við óvart í páskaskrúðgöngu við dómkirkju St. Patrick’s, þar sem Fifth Avenue fylltist af fólki í litríkum búningum með ótrúlega hatta – ein skemmtilegasta stemning sem við upplifðum í borginni, þar sem bros og kærleikur skín úr hverju andliti. Þessi borg er alveg sér á parti.

Viltu vita meira? Hér eru fleiri staðir og upplifanir sem við mælum með:
Fíladelfía – spennandi og kemur á óvart
Matarborgir – fleiri áfangastaðir
Bandaríkin – eitt og annað.
In English
New York is a true food city, bursting with life from morning until late at night. With countless restaurants, cafés, and food spots on every corner, the city offers an endless variety of culinary experiences. From quick bites to memorable dining, there is something for everyone.
What stands out most is the energy – New York never seems to slow down. The atmosphere is vibrant, sometimes intense, and always engaging. While service can feel a bit rehearsed at times, the quality of the food consistently delivers.
New York fully lives up to its reputation as one of the most exciting food cities in the world.

