
Hvernig fáum við hvítar skyrtur til að vera hvítar?
Hvítar skyrtur eru alltaf klassi og margir eru í hvítri skyrtu í vinnunni. Til að þær endist eitthvað, þarf að fara vel með þær. Bergþór er hokinn af reynslu og deilir hér með okkur hvað gott er að hafa í huga.
— HÚSRÁÐ — GÖMLU HÚSRÁÐIN — ÝMISLEGT — English —
.
1. Þvo oft
Settu hvíta skyrtu í þvott þegar þú hefur farið í hana einu sinni. Ekki láta hálsfituna safnast upp og verða brennd inn í kragann. Aldrei fara í hana daginn eftir og aldrei hengja hana inn í skáp eftir notkun.
2. Lár hiti
Ekki nudda í forhreinsun (ef það er fitulitur á kraganum, farðu þá neðst í pistilinn). Þvoðu á 30°C, í mesta lagi 40°C (aðeins hvítt saman) og minnstu vindu. Engin mýkingarefni, þau safnast í trefjar.
3. Hengja strax upp
Hengdu á herðatré og teygðu á skyrtunni, einkum brjóstinu. Helst samt að setja hana út á snúru, ef það er mögulegt, ilmurinn sem kemur í skyrturnar er engu líkur. Sólskin er líka hvíttandi.
4. STRAUJA?
Flestar skyrtur þarf ekki að strauja ef þær fengu minnstu vindu og það hefur verið teygt vel á þeim, alla vega svona hversdags. Ef þú vilt vera viss, straujaðu þá bara brjóstið og kragann ef þú notar skyrtuna aðeins með jakka eða peysu yfir. Það er óþarfi að vinna sér hlutina erfiðari en þeir eru. Ef þú ert bara á skyrtunni er auðvitað skemmtilegra að hún sé straujuð, ekki bara brjóstið. Líka spariskyrtur, það er allt annar fílingur að fara í nýstraujaða skyrtu þegar þú ert að fara eitthvað fínt.
Ef það er komin fitugula í kragann:
Ekki nudda. Helltu sjóðandi vatni yfir 1 msk af Vanish dufti (Oxi action – whitener) í stóra skál, settu kragana í vatnið og leyfðu þeim að liggja í 30-60 mín. (Það er líka hægt nota aðferðina hennar ömmu, mauka krem úr matarsóda, smá vatni og 2 dropum af uppþvottalegi í staðinn fyrir Vanish, bera á og láta liggja á í 30 mín). Það má líka setja skyrturnar í heilu lagi einstaka sinnum, en þá þarftu sennilega bala. Þvoðu síðan skv. 1.-4.
Hvít skyrta er ein af þessum fáu flíkum sem passar alltaf — hvort sem dagurinn kallar á einfaldan hversdagsstíl, sumarlegt yfirbragð eða fágaðan glæsileika. Hún er tímalaus klassík sem fær stöðugt nýtt líf með mismunandi sniðum, efnum og fylgihlutum.
Fleira áhugavert:
— Grafinn lax og graflaxsósa — Rabarbarasulta — Sítrónu linguine Nigellu — Múffur með eplum og haframjöli — Döðlukonfekt, gott, gott — Humarveisla Önnu Rósu — Forsetaísinn — Skúffukakan besta —
