Vanilluextrakt

Hvernig á að búa til heimagert vanilluextrakt – auðvelt og bragðbetra

16
Auglýsing
Vanilla extrakt vanillu dropar vanillustangir beans vodki Vanilluextrakt vanillabeans heimagerður vanilluextraktvanilluextrakt uppskrift gera vanilluextrakt vanilluextrakt með vodka hvernig á að búa til vanilluextrakt vanilla extract recipe homemade heimagerður vanilla extract vanillustangir í vodka vanilluextrakt geymsla hversu lengi geymist vanilluextrakt vanilluextrakt vs vanillusykur náttúrulegur vanillukeimur besta vanilluextrakt hreinn vanilluextrakt vanilluextrakt í bakstur vanilla extract for baking heimabakað bragð vanilla vanilludropar eða extrakt vanilluextrakt án aukefna DIY vanilluextrakt vanillustangir uppskrift gjafahugmyndir úr eldhúsinu heimagerð matargjöf edible gifts homemade vanilluextrakt gjöf litlar gjafaflöskur með vanillu hvernig nota vanilluextrakt vanilla í eftirrétti vanillubragð í kökur vanilla spice description The Book of Spices vanilla vanilla krydd upplýsingar dýrasta krydd vanilla saffran
Heimagert vanilluextrakt – einfalt, fallegt og ilmandi.

Vanilluextrakt

Heimagert vanilluextrakt – einfalt, fallegt og ilmandi.

Vanilluextrakt ætti að vera til á hverju heimili. Gamli góði vanillusykurinn og vanilludroparnir komast einfaldlega ekki í hálfkvist við alvöru extrakt – bragðið er dýpra og miklu náttúrulegra.

Auglýsing

Það er líka einstaklega einfalt að útbúa vanilluextrakt sjálfur. Fallegar litlar flöskur með heimagerðu extrakti eru auk þess frábærar tækifærisgjafir sem gleðja alla sem hafa áhuga á matargerð.

Í bókinni The Book of Spices er vanillu lýst sem hreinni, kryddaðri og fíngerðri – lýsing sem hittir naglann á höfuðið. Vanilla er jafnframt eitt dýrasta krydd heims, næst á eftir saffrani.

VANILLABAKSTUREFTIRRÉTTIR

.

Vanillu extract

Ein vodkaflaska

10 vanillustangir

Skerið vanillustangirnar eftir endilöngu þannig að þær opnist, en haldist saman í mjórri endanum. Setjið þær út í vodkaflöskuna.
Geymið flöskuna á dimmum og svölum stað og hristið hana af og til, til dæmis einu sinni í viku.
Extraktið er tilbúið eftir um tvo mánuði – en verður í raun aðeins betra með tímanum.
Vanilluextrakt geymist mjög lengi og hægt er að bæta nýjum vanillustöngum í flöskuna eftir þörfum.

VANILLABAKSTUREFTIRRÉTTIR

.

Fyrri færslaRauðrófumauk
Næsta færslaChai te

16 athugasemdir

  1. Hvaða vodka mælir þú með í þetta? Vil ekki eitthvað sem er of mikill spíri.

  2. Bragðlítinn vodka. Sjálfur hef ég bæði notað Reykja og Smirnoff og líkað vel

  3. Ég er með 1 líter af vodka hvað á ég að setja margar stangir í hann ?

  4. 12-14 stangir. Þú skalt kljúfa þær eftir endilöngu áður en þú setur þær út í vínið

  5. Hefur gert svona og keypti bara ódýran pólskan vodka og veit ekkert hvernig hann er á bragðið! En þetta. Var rosa gott í allt!

  6. Hef gert þetta lengii en nota þà “afganga” af jólaísnum (nota þar bara innanúr vanillustönginni) og set í koníak. Bestu vanilludropar 🙂

  7. Á að fjarlægja vanillustangirnar eftir þessa tvo mánuði?

  8. Við notum tindavodka ï snapsana sem við gerum fyrir jòlin, rifsberja, hunangs og fleiri snapsa. Hann er frekar bragðlïtill og hentar þvi vel.

Comments are closed.