Raspterta. Já, raspterta!
ég bragðaði Raspertu í fyrsta skipti í afmæli Eddu frænku minnar þegar ég var ca níu ára. Á þeim árum var ég bæði feiminn og óframfærinn og þorði ekki fyrir mitt litla líf að biðja um uppskrift og bað því mömmu um að fá uppskriftina hjá Þóru, mömmu Eddu. Allar götu síðan hefur raspterta verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Á meðan ég skrifaði í Gestgjafann fékk ég Guju Begga (sem flestir Austfirðingar þekkja) til að baka tertuna og svo borðaði ég hana næstum því alla sjálfur…
.
— TERTUR — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — GUJA BEGGA — RASP — ESTHER HERMANNS —
.
Annars er ég alveg steinhættur að útbúa dísæt glassúrkrem (en læt þó uppskriftina fylgja með), það er mun betra að bræða súkkulaði og bæta við matarolíu.
-Kona ein fyrir austan mun hafa sett saxaðar döðlur í botninn, ég prófa það næst 🙂
RASPTERTAN GÓÐA
4 eggjarauður
3/4 b sykur
1 1/2 b gyllt rasp (Paxo)
2 msk brætt smjör
2 stk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
1/2 salt
3 msk kalt vatn
4 eggjahvítur
2 pelar rjómi
2 bananar
Þeytið vel saman eggjarauður og sykur blandið vatni saman við. Setjið rasp, lyftiduft, vanilludropa, salt og smjör saman við og hrærið áfram um stund. Stífþeytið eggjahvítur og blandið þeim varlega saman við.
Setjið í tvö 20 cm smurð form. Bakið í ca 15-20 mín við 200 gr (eða þangað til botnarnir eru gylltir af ofan).
Látið botnana kólna. Stífþeytið rjómann, geymið ca helminginn af honum til að skreyta hliðarnar með. Setjið hluta af rjómanum sem er eftir á annan botninn. Skerið bananana í þunnar sneiðar og raðið ofan á rjómann. Setjið þá rjóma ofan á bananana og loks hinn botninn.
Hvort viltu krem eða súkkulaðiglassúr á tertuna ?
Krem
150 g gott dökkt súkkulaði
2 msk góð matarolía
Setjið saman í glerskál og bræðið við lágan hita í vatnsbaði. Hellið yfir tertuna.
Súkkulaðiglassúr
100 gr flórsykur
1 msk smjör
1 msk kakó
smá salt
vanilludropar
2-3 msk heitt kaffi
Blandið öllu saman og smyrjið yfir kökuna
Sprautið afgangnum af þeytta rjómanum á hliðarnar.
.
— TERTUR — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR — GUJA BEGGA — RASP — ESTHER HERMANNS —
.