Pavlova

2
Auglýsing
nýja sjáland ástralía Pavlova Jóhann Kjartan Örn steindórsson, Freyja rún Elísa jóhannsdóttir Fríður ósk terta ávextir marengs johann orn pavlóva pavlóvuterta marengstertaPavlova Pavlovaterta Pavlova uppskrift  Kíví kivi klassísk pavlova pavlova með ávöxtum pavlova með rjóma marens terta marengs terta marensbotn marengsbotn marens með rjóma og ávöxtum einfaldur eftirréttur auðveld terta létt eftirréttur sumarterta eftirréttur með ávöxtum eftirréttur fyrir veislur eftirréttur fyrir gestaboð eftirréttur án hveitis glútenlaus terta klassískur eftirréttur heimabökuð terta Anna Pavlova Anna Pavlova ballerína Anna Pavlova ballett Anna Pavlova Dauðasvanurinn Dauðasvanurinn ballett The Dying Swan ballet Michel Fokine Sergei Diaghilev Rússneski ballettinn Ballets Russes ballettsaga klassískur ballett príma ballerína frægar ballerínur listamenn sem lifa áfram í mat eftirréttur kenndur við listamann matur og menning matur og saga matarmenning saga pavlovutertu Ástralía pavlova Nýja-Sjáland pavlova uppruni pavlovutertu hver fann upp pavlovu deilan um pavlovu þjóðarréttur Ástralíu þjóðarréttur Nýja-Sjálands klassískur eftirréttur frá Eyjaálfu pavlova í Ástralíu pavlova í Nýja-Sjálandi marens án of mikils sykurs minna sykur í pavlovu pavlova með minni sykri ekki of sæt terta mildur eftirréttur ekki loðinn af sykri jafnvægi bragða í eftirréttum bökun pavlova hvernig á að baka pavlovu pavlova í ofni bökun við lágan hita marens bakaður í langan tíma marens kólna í ofni ráð við marensbakstur rjómi á pavlovu þeyttur rjómi vanilla í rjóma hvenær á að setja rjóma á pavlovu hvernig forðast að marens blotni ávextir á pavlovu jarðarber á pavlovu mangó á pavlovu bláber á pavlovu vínber á pavlovu kiwi á pavlovu litrík terta ávextir eftir litum rauðir ávextir gulir ávextir bláir ávextir grænir ávextir pavlova með súkkulaði brætt súkkulaði á pavlovu dúllerí á eftirréttum skreytingar á tertum falleg framsetning eftirrétta pavlova með ís pavlova og vanilluís eftirréttur fyrir sumar sumarveislur hátíðlegur eftirréttur afmælisveisla kaffiboð gestaboð heima myndatexti ballett Dauðasvanurinn mynd Anna Pavlova mynd ballettmyndir ikonísk ballettverk táknmynd ballettsögunnar Hver var pavlova? hver var pavlóva?
Jóhann Örn með Pavlóvuna

Pavlova

Oft fennir fljótt í spor listamanna, jafnvel þeirra frægustu, þegar þeir hafa lokið starfsævi sinni. Stundum er nafni þeirra þó haldið á lofti af öðrum ástæðum en til stóð.

PAVLOVURÁSTRALÍANÝJA-SJÁLANDKJARTAN ÖRN MARENGS — TERTUR

Auglýsing

.

Anna Pavlova er enn þekkt fyrir túlkun sína á “Dauðasvaninum“, stuttu einleiksballetti sem var samið sérstaklega fyrir hana af Michel Fokine árið 1905. Þessi túlkun hennar hefur orðið ein af táknmyndum ballettsögunnar.

Anna Pavlova fæddist 1881 í Sankti Pétursborg í Rússlandi. Hún varð príma ballerína í Rússneska ballettinum hjá Sergei Diaghilev og sú fyrsta til að fara í dansferðalög um heiminn til að sýna listir sínar. Á þriðja áratug 20. aldar fór hún til Ástralíu og Nýja-Sjálands. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttarterta, sem kennd var við hana, í ferðinni. Ástralir og Nýsjálendingar rífast líklega til enda veraldar um hvor þjóðin á heiðurinn, enda vildu allir Pavlovu kveðið hafa.

Tertan vakti mikla lukku og hefur æ síðan verið ein frægasta terta heims, enda er hún afskaplega ljúffeng. Alloft er einfalt það besta og Pavlova er sérlega einföld og auðveld. Í grunninn samanstendur hún af marensbotni, þeyttum rjóma og ávöxtum. Til er fjöldinn allur af uppskriftum, en yfirleitt finnst mér alltof mikið af sykri í þeim. Það er aldrei notalegt þegar munnurinn verður loðinn af sykri. Ég prófaði mig því áfram og niðurstaðan varð þessi.

Gott er að baka að kvöldi, setja rjómann á að morgni (svo að marensinn blotni) og ávextina rétt áður en á að bera tertuna fram.

8 eggjahvítur þeyttar ásamt 250 g af sykri (1 1/2 dl ca). Smám saman er bætt út í 1 tsk af sítrónusafa, 1 tsk af vanilludropum og ½ tsk af salti.

Þegar þetta er orðið stíft, svo að hægt er að búa til toppa, er bökunarpappír settur á ofnplötu, marensinn settur í miðjuna og breiddur út í fallegan hring með sleikju. Bakað í 2 klst. við 100°C. Þá er slökkt undir og tertan látin kólna til morguns.

½ l rjómi þeyttur með 1 tsk vanillusykri og smurt á.

Skreytt er með ávöxtum að vild, en gott að miða við rauðan (t.d. jarðarber), gulan (t.d. mangó), bláan (t.d. bláber og blá vínber) og grænan (t.d. græn vínber og kiwi).

Svo má auðvitað dúlla svolítið, t.d. með því að hella bráðnu (en ekki mjög heitu) súkkulaði yfir í þunnum taumum. Á sumrin er gott að bera fram léttan ís með tertunni.

Steindór sker Pavlovuna
Kjartan Örn og Freyja Rún

.

PAVLOVURÁSTRALÍANÝJA-SJÁLANDKJARTAN ÖRN MARENGS — TERTUR

.

Fyrri færslaFiskur undir kókosþaki
Næsta færslaPestó – grunnuppskriftin

2 athugasemdir

  1. Hef lengi beðið eftir góðri uppskrift af þessari dásemd. Er samt ekki mjög oft edik í Pavlovu? Hlakka til að prófa 🙂

Comments are closed.