Engiferdressing

Engiferdressing boðið vestur engifer dressing
Engifer í engiferdressingu

Engiferdressing

Í bókabúð rakst ég á nýlega útkomna bók sem heitir Boðið vestur – veisluföng úr náttúru Vestfjarða. Bókin er matreiðslubók en meira en það. Í bókinni, sem skipt er upp í kafla eftir  mánuðum ársins, er mikill fjöldi uppskrifta að ýmiss konar réttum að vestan úr því náttúrulega hráefni sem í boði er á hverjum árstíma. Fínasta bók sem vel má mæla með. Uppskriftin hér að neðan er úr bókinni Boðið vestur.

BOÐIÐ VESTUR —  ÍSAFJÖRÐURENGIFERDRESSING

.

Engiferdressing

1 1/2 dl ólífuolía

1 tsk soyasósa

safi úr einni lime

2 tsk hunang

1 tsk rifið engifer

1 hvítlauksrif – saxað fínt

Maldonsalt eftir smekk

Hristið saman í krukku með loki. Hellið yfir salat rétt áður en það er borið fram.

BOÐIÐ VESTUR —  ÍSAFJÖRÐURENGIFERDRESSING

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Bláber eru með hollustu fæðutegundum

blaber

Bláber. Sífellt fleiri rannsóknir styðja mátt andoxunarefna í líkamanum. Nú síðast gerði matvælafræðinemi í South Dakota State University, Marin Plumb, rannsóknir á bláberjum. Hún komst að því að bláber halda næringargildi sínu jafnvel eftir sex mánuði í frysti. Marin mældi andoxunarefni í bláberjum sem höfðu verið frosin í einn, þrjá og fimm mánuði. Ekki aðeins hélst næringargildið, en að auki jókst þéttni anthocyanins.