Rabarbara- og eplabaka

RABARBARI Rabarbara- og eplabaka rabbarbari epli kanill engifer baka kaffimeðlæti
Rabarbara- og eplabaka

Rabarbara- og eplabaka

Endilega nýtum rabarbarann eins og við getum, það má sulta, gera grauta, baka úr honum (t.d. rabarbarapæ) og ég veit ekki hvað og hvað. Sjálfur frysti ég aldrei rabarbara, mér finnst hann vera afurð sumarsins.

RABARBARIEPLIBÖKURKAFFIMEÐLÆTI

.

Rabarbara- og eplabaka

3-4 rabarbaraleggir

1 stórt grænt epli

1 tsk ferskur stítrónusafi

1/2 tsk rifið engifer

1 1/2 msk sykur

3/4 tsk kanill

Ofan á:

3 dl haframjöl

2 dl hveiti

1 dl saxaðar valhnetur

1 tsk kanill

1/2 tsk rifið engifer

1/3 tsk múskat

1/3 tsk allrahanda

1 dl kókosolía, fljótandi

1 dl maple síróp

1 tsk vanilla

Saxið rabarbara og epli og setjið í eldfast form. Blandið kanil, engifer, sítrónusafa og sykri saman við.

Blandið saman í skál haframjöli, hveiti, valhnetum, engifer, múskati, allrahanda, kókosolíu, sírópi og vanillu. Setjið yfir rabarbarann og eplin og bakið í 20-25 mín við 180°

Rabarbara- og eplabakaRabarbara- og eplabaka

.

RABARBARIEPLIBÖKURKAFFIMEÐLÆTI

.

SaveSave

SaveSaveSaveSave

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Súkkulaðiterta með viðhöfn

Ferrero Rocherterta

Súkkulaðiterta með viðhöfn. Hneturnar og pralínið úr þeim gera þessa tertu að sérstakri upplifun. Stökkt kornfleksið saman við pralínsmjörið gerir fólk þannig á svipinn, að það virðist hafa komist til himnaríkis. Alla vega er þetta hátíðaterta með þremur kremum (!) og gott að hafa góðan tíma til að útbúa. En stundum er gaman að hafa mikið við, t.d. á jólum, páskum, stórafmælum eða brúðkaupum.