Sólberjasulta
Mikið óskaplega eru sólber bragðgóð og holl. Þegar við erum duglegir að tína sólber, þá sultum við úr hluta og pressum safann úr restinni af berjunum(og öðrum berjum) og frystum í klakapokum – klakana notum við svo í búst. Hratið má t.d. þurrka og blanda saman við múslí. Þeir sem ekki eiga berjapressu geta auðvitað soðið berin ásamt sykri, sítrónu og salti og pressað svo í gegnum sigti eða grisju.
— SÓLBER — SULTUR — BLÁBER — SUMAR… — RIFSBER —
.
Sólberjasulta
1 kg sólber
1 dl vatn
7-800 g sykur
safi úr 1/3 sítrónu
1/3 tsk salt
Setjið sólber og vatn í pott og sjóðið í fimm mín, maukið með kartöflupressu. Slökkvið undir og látið kólna í 15-20 mín. Setjið sólberin í safapressu og látið safann í pott ásamt sykri sítrónusafa og salti. Sjóðið í nokkrar mín. og setjið á tandurhreinar glerkrukkur og lokið þeim strax.
Af síðu Heilsubankans: Nýverið komu fram niðurstöður rannsókna í Englandi um sólber. Þau geta hjálpað mikið þegar um blöðrubólgu eða aðra þvagfærasjúkdóma er að ræða. Venjulegast er, að búa til sultur úr sólberjum. En ef drukkinn er hreinn sólberjadjús og sólber borðuð þá er mun minni hætta á að fá þvagfærasýkingar. Sólberin eru alls ekki síðri en trönuberin og trönuberjadjúsinn til að berjst við kvilla sem þessa. Einnig hefur sortulyng reynst vel við blöðrubólgu.
.
— SÓLBER — SULTUR — BLÁBER — SUMAR… — RIFSBER —
.