Kasjú mæjónes – salatsósa. Merkilegt, enn er til fólk sem heldur að mæjónes sé óhollt og slæmt fyrir okkur. En því fer fjarri, t.d. ef olían sem er notuð er góð – svo er gaman að gera sitt eigið mæjónes. Svo má gera enn betra og miklu hollara mæjónes úr kasjúnetum og fleira góðgæti. Því miður átti ég ekki rauða papriku
KASJÚHNETUR — MÆJÓNES —
Kasjú mæjónes – salatsósa
2 dl kasjúhnetur, leggið í bleyti 2-4 klst
1 paprika skorin í bita
3 msk sítrónusafi
3 tsk laukduft
1 1/2 msk næringarger
2 hvítlauksrif
3 döðlur
smá hunang
1/2 tsk salt
vatn til að þynna.
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel. Þynnið með vatni ef þarf.