Döðlubrauðið góða. Sigrún sá um kaffimeðlæti á föstudaginn sem við átum upp til agna…
— SIGRÚN SVEINSDÓTTIR — DÖÐLUBRAUЗ FÖSTUDAGSKAFFI —
.
Döðlubrauðið góða
1 1/2 b hveiti
1/2 b kókosmjöl
1/2 b sykur (eða minna – má þess vegna sleppa honum)
1 b döðlur
1 b vatn
1 tsk matarsódi
1 msk smjör
1 egg
1/3 tsk salt.
Setjið döðlur, vatn og smjör í pott og hitið að suðu og látið malla í 1 – 2 mínútur, hrærið í á meðan. Setjið svo í hrærvél og hrærið þar til hún er orðin að mauki. Bætið við restinni af hráefnunum og blandað saman. Deigið er sett í smurt brauðform (ca22x8 cm) og bakað við 180 gráður í 50 mínútur.
.
— SIGRÚN SVEINSDÓTTIR — DÖÐLUBRAUЗ FÖSTUDAGSKAFFI —
.