Matarsódi, lyftiduft og vínsteinslyftiduft

Matarsódi, lyftiduft og vínsteinslyftiduft

Matarsódi, lyftiduft og vínsteinslyftiduft. Matarsódi eða bökunarsódi eru algöngustu nöfnin yfir natríumbíkarbónat. Þegar það samtengist deigefnum með hátt sýrustig, eins og súrmjólk, sítrónusafa eða edik, myndast koltvísýringsloftbólur sem lyfta deiginu. Það er mikilvægt að jafnvægi ríki milli lyftiefnis og sýru í deigi. Á móti hverri háfri teskeið af matarsóda skal nota 2 1/2 dl af súrmjólk eða jógúrt, eða 1 msk af sítrónusafa eða ediki. Matarsóda má einnig virkja með því að blanda hann með vínsteinslyftidufti í hlutföllunum 2 á móti 2 1/2, og bæta síðan við mjólk eða vatni.

Lyftiduft er tilbúin blanda af natríumoxíði og sýru og er ætlað að sýna óyggjandi árangur. Það framkallar koltvísýring þegar það kemst í snertingu við vatn. Þumalputtareglan er að 1 1/2 tsk af lyftidufti þurfi til að lyfta 125 g af hveiti (en það getur þó verið breytilegt).

MATARSÓDIBAKSTURLYFTIDUFTVÍNSTEINSLYFTIDUFT

— MATARSÓDI, LYFTIDUFT, VÍNSTEINSLYFTIDUFT —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.