Bláberjaterta með hvítu súkkulaði
Góðir Íslendingar! 17. júní tertan tilbúin, óskaplega bragðgóð og mjúk. Við megum ekki gleyma hvíta súkkulaðinu, það er gott líka. Já og það hverfur líka úr súkkulaðiskúffunni minni…. (eins og sjá má hér neðst á síðunni). Silkimjúk bláberjaterta sem rennur niður með góðum kaffibolla. Gleðilegan þjóðhátíðardag með gleðilegri bláberjatertu 🙂
— HVÍTT SÚKKULAÐI — TERTUR — 17. JÚNÍ — BLÁBER —
🇮🇸
Bláberjaterta með hvítu súkkulaði
Botn:
1 pk Graham kex
50 g smjör, brætt
3 msk olía
1 tsk sykur
200 g hvítt súkkulaði, brætt
1/2 tsk salt
Fylling:
1 ds rjómaostur
1 msk sykur
1/3 b rjómi
1 egg
2 tsk vanilla
2 b (frosin) bláber
Botn: myljið kexið (t.d. í matvinnsluvél) og bætið saman við það smjöri, olíu, sykri, súkkulaði og salti. Blandið vel saman og þjappið því í kringlótt form (og líka upp með hliðunum). Kælið á meðan fyllingin er undirbúin.
Fylling. Þeytið í hrærivél rjómaost og sykur. Bætið við rjóma, eggi og vanillu og hrærið vel saman. Hellið yfir botninn og dreifið 2/3 af bláberjunum yfir. Bakið við 150° í rúmlega klst. Þegar kakan er bökuð er restinni af bláberjunum dreift jafnt yfir og þeim ýtt aðeins ofan í. Tertan verður að ná stofuhita áður en hún er borin á borð því annars rennur hún út um allt. Enn betra er að kæla hana og bera þannig fram.
.
— HVÍTT SÚKKULAÐI — TERTUR — 17. JÚNÍ — BLÁBER —
— BLÁBERJATERTA MEÐ HVÍTU SÚKKULAÐI —
🇮🇸