
Dúnmjúk frá Diddú
Fáir komast með tærnar þar sem Sigrún Hjálmtýsdóttir hefur hælana þegar kemur að góðum mat. Þessi uppskrift er samvinnuverkefni hennar og Melkorku dóttur hennar sem einnig hefur lag á að útbúa góðan mat.
— DIDDÚ — VEGAN — EFTIRRÉTTIR —
.
Dúnmjúk frá Diddú
Botn:
300 g hnetumix og fræjum, saxað léttilega í mixer (valhnetur, furuhnetur, kasjúhnetur, pekanhnetur, sesamfræ)
8-10 döðlur (steinar fjarlægðir, döðlur soðnar upp í smá floridana engifersafa)
1-2msk kókosolía (bætt úti volgt döðlumauk)
Blandið öllu saman og þrýstið niður í kökumót
Krem:
300 g mjúkt tofú
4 msk kókosmjólk
2 msk gróft hnetusmjör (lífrænt)
100 g 70% súkkulaði (brætt)
Þeytið öllu saman og hellið yfir botninn.
Kælið í ísskáp.
Borið fram með ferskum berjum.
Buon appetito!!!
.
— DIDDÚ — VEGAN — EFTIRRÉTTIR —
.
Flott uppskrift, en hvað mætti nota í staðinn fyrir Tofú ?
Held að ekkert komi í staðinn fyrir tófú. Sé á netinu að einhver notar þykka jógúrt í staðinn (en hef ekki prófað sjálfur)
Comments are closed.