Matarsódi
„Mikið rétt ég hef reynslu á magavandamálum og brjóstsviða og þar kemur matarsódin sér vel að gagni bara passa að setja helst ekki meira en eina teskeið í meðalstórt glas af vatni”
„2 dollur af Matarsóda útí vel heitt bað og liggja þar í 20 mín áður enn farið er að sofa. Snilldarleið til draga úr verkjum og bólgu í vöðvum og liðum.”
„Matarsódi er hinn besti svitalyktareyðir. Setjið ca hálfa teskeið af matarsóda í lófann, vætið með örlitlu vatni, nuddið milli lófanna og síðan undir hendurna. Alveg skothelt”
„Matarsódi jafnar sýrustig líkamans. Matarsódi er sérstaklega góður til að gera líkamann meira basískan eða jafna sýrustig líkamans. Mjög góður fyrir þá sem drekka mikið af kaffi, áfengi eða reykja. Notkun: 1 tsk af matarsóda í vatn einu sinni á dag og drekkið í 3 vikur og síðan hvílt í eina viku í senn. Matarsódinn mýkir vatn þegar hann er notaður í baðvatn.”
Sjá fleiri færslur: MATUR LÆKNAR
.