Marokkóskir snjóboltar
Andrea vinkona mín í mötuneyti Listaháskólans galdraði fram þessar bollur sem runnu ljúflega niður með góðum kaffisopa. Annars munu snjóboltarnir vera vinsæll eftirréttur í Marokkó.
– LISTAHÁSKÓLINN — MAROKKÓ — ANDREA GUÐM –
.
Marokkóskir snjóboltar
2 1/2 b hveiti
1/2 b sykur
1/2 b olía
2 egg
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 b kókosmjöl
1 b apríkósusulta
Hrærið eggjum og olíu saman, bætið við sykur, lyftidufti, salti, vanillu og loks hveiti.
Mótið litlar bollur og bakið þær við 180° í um 10 mín. Látið kólna.
Velgið apríkósusultuna örlítið. Veltið bollunum upp úr henni og síðan uppúr kókosmjölinu.
– LISTAHÁSKÓLINN — MAROKKÓ — ANDREA GUÐM –
.