Rabarbara- og döðluchutney

Rabarbara- og döðluchutney rabarbari rabbabari epli döðlur engifer
Rabarbarachutney. Rabarbari, engifer, döðlur og epli

Rabarbarachutney

Í öllum bænum nýtið rabarbarann sem vex svo víða. Rabarbarachutney er kjörið sem meðlæti með grillmatnum, ýmsum steikum, með ostum og snittubrauði, ofan á ristað brauð, með steiktum fiski……

Rabarbarachutney

350 g rabarbari

1 dl döðlur

2 cm engifer (ca 1 msk rifið engifer)

1 epli

1 laukur

1 dl rúsínur

1 tsk sterkt sinnep

1 tsk karrý

2 dl sykur

1/3 tsk salt

4-5 dl rauðvín

Saxið rabarbara (frekar smátt), döðlur, engifer, epli, lauk og rúsínur. Setjið í pott ásamt sinnepi, karrýi, sykri, salti og rauðvíni

Sjóðið við vægan hita í um 40 mín. Setjið í glerkrukkur og lokið þeim meðan chutneyið er ennþá heitt. Geymið á köldum stað.

Auglýsing

Meira úr sama flokki