Ber í rommi
Í upphaflegu uppskriftinni voru aðeins ber en ég ákvað að bæta við fleiri ávöxtum. Þannig að nafnið ætti eiginlega að vera: Ávextir í rommi. En hitt hljómar mun betur, sérstaklega ef við höfum í huga hina frægu bók Helgu Sigurðar Grænmeti og ber allt árið sem gárungar þessa lands kölluðu Ber allt árið
Ber í rommi eru stórfín með jólaísnum eða hinum ýmsu eftirréttum á jólum eða áramótum (eða hvenær sem er).
Ávextina má sigta frá og blanda saman við þeyttan rjóma eða setja saman við frómasinn.
Ef þið ætlið að hafa þetta tilbúið á jólunum er fínt að hefjast handa núna. Það er eiginlega ekki hægt að gefa upp hversu mikið á að nota nákvæmlega. Rommið þarf að fljóta yfir.
-– HELGA SIGURÐAR — BER — ÁVEXTIR — ROMM — JÓLIN —
.
Ber í rommi
Ber og ávextir
púðursykur (ca 2 dl í krukkuna á myndinni)
dökkt romm.
Setjið ávextina í glerkrukku, bætið púðursykri við og hellið romminu yfir. Lokið og látið standa á svölum stað í 2 1/2 – 3 mánuði.
.
-– HELGA SIGURÐAR — BER — ÁVEXTIR — ROMM — JÓLIN —