Skúffukaka sem klikkar aldrei

Líklega besta skúffukaka sem ég hef smakkað – mjúk, safarík og algjörlega ómótstæðileg

1
Auglýsing
súkkulaðikaka súkkulaðiterta Skúffukaka sem klikkar aldrei Dagný Reykjalín Akureyri grísk jógúrt skúffukaka uppskriftskúffukaka sem klikkar aldrei besta skúffukaka mjúk skúffukaka safarík skúffukaka einföld skúffukaka skúffukaka með kakói skúffukaka með kremi súkkulaði skúffukaka súkkulaðikaka í skúffu kaka í skúffu uppskrift klassísk skúffukaka heimagerð skúffukaka skúffukaka með jógúrt skúffukaka með olíu skúffukaka án smjörlíkis rakamikil súkkulaðikaka mjúk súkkulaðikaka uppskrift best súkkulaðikaka í ofni súkkulaðikaka með kakói kaka með kakói uppskrift fljótleg kaka uppskrift auðveld kaka með kaffinu kaka fyrir gesti kaka sem slær í gegn kaka fyrir afmæli kaka fyrir kaffiboð skreytt skúffukaka skúffukaka með kókosmjöli skúffukaka með ávöxtum skúffukaka með súkkulaðikremi krem á skúffuköku súkkulaðikrem uppskrift kaka í ofni 180 gráður bakstur fyrir byrjendur heimabakstur uppskrift sætabrauð uppskrift uppskrift að mjúkri köku uppskrift að einfaldri köku skúffukaka með Cadbury’s kakói skúffukaka með Kornax hveiti uppskrift frá Dagný Reykjalín Blekhönnun Akureyri
Skúffukaka sem klikkar aldrei

Skúffukaka sem klikkar aldrei

Dagný Reykjalín hjá Blekhönnun á Akureyri hannaði og útbjó nýja heimasíðu fyrir mig – og það má með sanni segja að hún sé með augu á hverjum fingri þegar kemur að öllu sem tengist netinu.

Eins og gengur í nútímanum fóru samskipti okkar að mestu fram í gegnum tölvu og síma, en um helgina bauð Dagný mér loksins í kaffi. Þar beið mín heimagerð skúffukaka sem fjölskyldan hennar hefur þróað og betrumbætt í gegnum tíðina.

Auglýsing

Rakel, fjögurra ára dóttir Dagnýjar, aðstoðaði við skreytingarnar af mikilli natni og var hin ræðnasta – ásamt bræðrum sínum sem tóku að sér ljósmyndunina 📸

Ég segi það alveg eins og er:
þetta er líklega besta skúffukaka sem ég hef smakkað.

.

AKUREYRISÚKKULAÐITERTURBAKAÐ MEÐ BÖRNUMVÖFFLURSKÚFFUKÖKUR

.

Skúffukaka sem klikkar aldrei Dagný Reykjalín Akureyri
Albert, Rakel og Dagný við skúffukökuna góðu

Skúffukaka sem klikkar aldrei

1,5 dl matarolía (ólífuolía eða önnur góð, nota aldrei smjörlíki og finnst olían betri en smjör)
2 egg (við stofuhita, ágætt að ylja í volgu vatni í smá stund)
3,5 dl sykur

4,5 dl hveiti (Kornax í bláu pokunum helst)
1 tsk natron
1 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk salt
1 dl bökunar kakó (nota Cadbury’s), sigtað
3 tsk vanillusykur eða 2 tsk vanilludropar
2-2,5 dl grísk jógúrt, karamellujógúrt eða ab mjólk
1,5-2 dl vatn

Þeytið olíu og sykur saman.
Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli.
Bætið restinni af hráefnunum út í og hrærið stuttlega saman.

Deigið á að vera frekar þunnt og fullt af loftbólum – það er lykillinn að mjúkri köku.

Bakið
Setjið í skúffukökuform (t.d. 23 × 33 cm)
Bakið neðst í ofni við 180–200°C í 20–30 mínútur

Kakan er tilbúin þegar hún hefur risið vel og prjónn kemur hreinn út.

Krem
ca. 100 g smjör (við stofuhita)
4–5 dl flórsykur
2–3 msk kakó, sigtað
3 tsk vanillusykur
1–2 msk vatn, mjólk eða kaffi
Aðferð
Þeytið smjörið þar til það verður mjúkt og kekkjalaust
Bætið flórsykri og kakói saman við
Þynnið með vökva þar til kremið verður silkimjúkt

Smyrjið á kökuna þegar hún hefur kólnað (má þó vera aðeins volg) – þá sígur kremið aðeins ofan í og verður sérstaklega ljúffengt.

Skreyting
Stráið kókosmjöli yfir
Ferskir ávextir eða nammi eftir smekk.

 

Þetta er svona kaka sem klikkar aldrei – einföld, rakamikil og með djúpu súkkulaðibragði. Fullkomin með góðum kaffibolla og enn betri í góðum félagsskap.

Fleira áhugavert:

Grafinn lax og graflaxsósaRabarbarasultaSítrónu linguine Nigellu — Múffur með eplum og haframjöliDöðlukonfekt, gott, gottHumarveisla Önnu Rósu  — Forsetaísinn

💖
Fyrri færslaHótel Glymur í Hvalfirði
Næsta færslaÞvoið gluggana í næsta vatnsveðri – besta húsráðið

1 athugasemd

Comments are closed.