Súkkulaðikaka með saltkaramellusmjörkremi
Úrvals hæfileikafólk leynist í mörgum eldhúsum, þó fari kannski ekki alltaf mikið fyrir því. Hulda Steinunn frænka mín er afar listræn og hugmyndarík. Hún hélt kaffisamsæti á dögunum og bauð þar upp á þessa dásamlegu súkkulaðitertu. Saltkaramellukremið er svo gott að þið ættuð a.m.k. að hugleiða að útbúa ríflega uppskrift af því (lesist: tvöfalda) – þetta er svona krem sem ekki er nokkur leið að hætta að borða…
🌸
— HULDA STEINUNN — SÚKKULAÐITERTUR — KARAMELLA — TERTUR — VÍNARBRAUÐ — ÝMISLEGT —
🌸
Súkkulaðikaka með saltkaramellusmjörkremi
2 bollar hveiti
2 bollar sykur
¾ bolli kakó
2 tsk lyftiduft
1 ½ tsk matarsódi
1 tsk salt
1 bolli mjólk
½ bolli olía
2 egg
2 tsk vanilludropar
1 bolli vatn, soðið
Forhitið ofn í 180°C
Setjið hveiti, sykur, kakó, lyftiduft, matarsóda og salt í skál og blandið saman.
Bætið við mjólk, olíu, eggjum og vanilludropum saman við þurrefnin og blandið vel. Bætið soðna vatninu varlega saman við blönduna.
Skiptið deiginu jafnt í tvö smurð form.
Bakið í 30-35 mín eða þar til prjónn kemur hreinn út. Látið kökurnar kólna í formunum í 10 mín. áður en þær er teknar úr.
Deigið á að vera þunnt eftir að vatninu er bætt saman við.
Saltkaramellu-smjörkrem
½ bolli púðursykur
½ bolli smjör
2 msk sýróp
½ bolli rjómi (fer eftir smekk)
1 klípa gróft salt
1 bolli smjör, mjúkt
2 bollar flórsykur
1 msk vanillusykur
Karamella – Bræðið púðursykur, smjör og sýróp í potti á meðalhita, þar til blandan fer að sjóða. Hrærið í nokkrar mín og látið kólna. Blandið salti og rjóma saman við í smá skömmtum.
Þeytið smjör, flórsykur og vanillusykur saman þar til blandan verður ljós. Blandið karamellu smám saman við smjörkremið. Hægt að geyma smá karamellu til að skreyta kökuna.
🌸
— HULDA STEINUNN — SÚKKULAÐITERTUR — KARAMELLA — TERTUR — VÍNARBRAUÐ — ÝMISLEGT —
— SÚKKULAÐITERTA MEÐ SALTKARAMELLUKREMI —
🌸