Auglýsing
Gátlisti brúðkaup gifting royal vilhjálmur katrín konunglegt enska konungskonungsfjölskyldan royal etiquette borðsiðir kurteisi prince princess
Vilhjálmur og Katrín nýgift

Fyrir brúðkaup Vilhjálms og Katrínar í Englandi árið 2012 var veislugestum sendur bæklingur með leiðbeiningum hvað á að gera og hvernig og líka hvað á ekki að gera í brúðkaupinu og í veislunni á eftir. Margt af því sem þar stendur á almennt við, ekki bara í konunglegum brúðkaupum. Hér eru nokkrir punktar út bæklingnum:

Staðfesta boðið með góðum fyrirvara – R.S.V.P.

Mæta a.m.k. 20 mín fyrir giftinguna í kirkjuna

Konur klæðast hvorki svörtu né hvítu og karlmenn: Uniform, Morning Coat, or Lounge Suit

Hjón eru minnt á að þau eru heild og beðin að hafa það í huga þegar þau ákveða klæðnað sinn.

Ekki má ávarpa konungsmeðlimi að fyrra bragði og alls ekki spyrja um eitthvað persónulegt.

Drottningin réttir út höndina ef hún vill heilsa.

Þegar drottningin hefur lokið við að snæða, skulu allir við borðið hætta að borða.

Bannað að taka selfie með konungsmeðlimum.

Má alls ekki setja inn færslur á facebook, twitter eða aðrar síður

Alls ekki nota líkamstjáningu eins og setja upp þumalputtann.

Gestir mega hvorki horfa á þjónustufólk né ávarpa það. Þjónustufólki er ekki leyft að horfa á konungsfjölskylduna.

Halda fallega á hnífapörum og glösum og passa að glösin fari aftur á sama stað.

Bannað að faðma eða snert drottninguna.

elisabeth Buckingham Royal Michelle Obama queen
Ein frægasta myndin sem sýnir hvernig ekki á að gera í Buckingham höll. Michelle Obama varð það á að leggja vinalega höndina bak drottningarinnar í myndatöku. Kannski hefur Betu þótt þetta hið besta mál.
enska konungskonungsfjölskyldan
Enska konungsfjölskyldan

.

ROYALENGLANDLONDON

— GÁTLISTI FYRIR KONUNGLEGT BRÚÐKAUP —

.

Auglýsing