Veitingastaðurinn Happ í Borgartúni – endalaust Happ, Happ og húrra!
Veitingastaðurinn Happ í Borgartúni. Við hrósum happi yfir Happi. Athafnakonan Lukka kallar ekki allt ömmu sína – af eldmóði og með þrautseygju hefur hún náð að opna augu fjölda fólks fyrir því að hollur matur skiptir okkur öllu máli. Með brosi á vör og af sannfæringu segir hún frá áhrifum matarins á líkamann. Við erum jú það sem við borðum og að stórum hluta berum við ábyrgð á eigin heilsu.
Lukka sá um veitingarnar í giftingunni okkar í sumar og var góður rómur gerður af þeim. Þær voru bæði fjölbreyttar, fallegar og góðar. Í vikunni borðuðum við á Happi og borðuðum yfir okkur eins stundum áður. EN það kemur ekki alveg að sök þar sem maturinn er meinhollur.
Af heimasíðunni: Happ hefur það að leiðarljósi að stuðla að auknu heilbrigði. Hver og einn getur lagt sína merkingu í orðið heilbrigði en fyrir okkur þýðir það allt sem stuðlar að auknum lífsgæðum, orku og ánægju. Hollur matur úr hreinu hráefni. Alvöru matur, gerður frá grunni í eldhúsi okkar án aukaefna, bragð- og litarefna. Listaverk úr náttúrunni sem gleður augað jafnt sem bragðlaukana. Góðar stundir með góðum vinum. Gleði og hlátrasköll. Hreyfing. Líkamleg áreynsla. Að yfirstíga hindranir. Hugarró og friður. Samkennd og snerting. Ást og kærleikur.
Allt þetta er heilbrigði. Allt þetta er Happ.
Við hrósum happi yfir Happi og Lukku líka. SJÁ MEIRA HÉR: LUKKA —
Límónukaka með mascarpone kremi, hinberjasósu og ferskum berjum
Myndir: Bragi Bergþórsson
Bakaður rauðlaukur
4 rauðlaukar
4 msk maple sýróp
2 msk olívuolía
Ofn hitaður í 200°
Hýðið tekið af raðlauknum og hann skorin í fjóra báta.
Allt saman sett í skál og blandað saman
Laukurinn settur í eldfast mót og bakaður í ca 15.mín eða þar til hann er orðin fallega gylltur.
–
— VEITINGASTAÐURINN HAPP Í BORGARTÚNI —
–